Íslenski boltinn

Ei­ríkur nýr þjálfari Vals

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eiríkur Raphael Elvy er nýr þjálfari kvennaliðs Vals.
Eiríkur Raphael Elvy er nýr þjálfari kvennaliðs Vals. Valur Fótbolti

Eiríkur Raphael Elvy er nýr þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta. Hann var hluti af þjálfarateymi liðsins í sumar en fær nú stöðuhækkun.

Valur greinir frá ráðningunni á Facebook-síðu félagsins. Eiríkur mun stýra Valskonum í Lengjudeildinni en Valur féll í fyrsta sinn í sögunni á nýliðinni leiktíð.

Eiríkur var áður hluti af þjálfarateymi Breiðabliks þegar Blikakonur urðu Íslandsmeistarar. Í yfirlýsingu Vals segir að árangur síðasta árs hafi ekki verið ásættanlegur og verkefni Eiríks einfalt: Að komast beint aftur upp í Bestu deildina.

„Ég er virkilega þakklátur fyrir traustið. Þetta er spennandi leikmannahópur með mikil gæði og stelpurnar hafa sýnt það á hverri æfingu að þær eru hungraðar í að gera betur. Verkefnið er stórt og ég get ekki beðið eftir því að byrja. Valur er lið sem á að vera í efstu deild en markmiðið nær lengra en það. Við erum að horfa á þetta sem þriggja ára vegferð þar sem við ætlum að koma liðinu aftur í fremstu röð,“ er haft eftir Eiríki í yfirlýsingunni.

Eiríkur gerir þriggja ára samning sem þjálfari liðsins. Sverrir Kristinsson verður aðstoðarþjálfari liðsins og Hilmar McShane styrktarþjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×