Lífið

Gera upp Skaupið: „Enda er mér nokkuð oft kastað í tussuna“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rætt var við leikara og leikstjóra Skaupsins. 
Rætt var við leikara og leikstjóra Skaupsins. 

Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi var farið yfir Áramótaskaupið 2021. Sindri Sindrason ræddi við leikstjórann, nokkra vel valda leikara og fengu áhorfendur að rifja upp bestu atriðin.

„Ég var nokkuð stressuð, ég er alltaf stressuð. Mér fannst upphafsatriðið geggjað og mér fannst kvíðabrandarinn ógeðslega fyndin,“ segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem hefur leikið átta sinnum í þessum vinsælasta sjónvarpsþætti þjóðarinnar.

„Það er alltaf gaman að leika í Skaupinu. Þetta er svolítið eins og að vera í Séð & Heyrt í gamla daga. Allir að tala um það í eina viku og svo man enginn eftir því,“ segir Elma sem segist vera nokkuð svipljót og því fær hún oftast svipuð hlutverk í Skaupinu.

„Enda er mér nokkuð oft kastað í tussuna. Ég er mjög góð að vera hneyksluð,“ segir Elma.

„Ég var mjög stressaður og sat við sjónvarpið stjarfur. Besti sketsinn fannst mér um Njálu,“ segir Vilhelm Neto sem lék í Skaupinu.

„Ég reyndi að fara ekki inn á Twitter en ég fór samt stundum þangað inn,“ segir Vilhelm og hlær.

„Það er rosalega erfitt að velja á milli barnanna sinna en mér finnst nú eiginlega konurnar í gamla daga besta atriðið,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri, Skaupsins.

„Ég væri alveg til í að gera þetta aftur, þetta er það skemmtileg vinna,“ segir Reynir.

 „Ég horfði með manninum mínum, öðrum syni mínum og nágrönnum mínum,“ segir Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem fór með nokkur hlutverk í Skaupinu.

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.