Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar í haldi vegna lekamáls Atli Ísleifsson skrifar 10. janúar 2022 13:01 Verði Lars Findsen fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi. Getty Fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa lekið leynilegum upplýsingum sem taldar eru geta skaðað hagsmuni danska ríkisins.
Greint var frá því í síðasta mánuði að fjórir fyrrverandi og núverandi starfsmenn leyniþjónustu hersins og lögreglunnar hafi verið handteknir vegna málsins. Í dag var nafnleynd aflétt í máli þess sem enn er í haldi. Er um ræða Lars Findsen sem var yfirmaður leyniþjónustu danska hersins um sex ára skeið. Leynd hvílir enn um hvað hinn 57 ára Findsen sé nákvæmlega grunaður um, en DR segir frá því að hann eigi að hafa lekið trúnaðargögnum til fjölmiðla. Fram til þessa hefur verið bannað að birta nafn þess sem er í haldi, en dómstóll aflétti því fyrir hádegi. Að sögn dómara var það Findsen sjálfur sem krafðist þess að leyndinni yrði aflétt. Danskir fjölmiðlar segja frá því að Findsen sé grunaður um eitthvað sem falli undir flokkinn „landráð“. DR segir að leyniþjónustan hafi fylgst með Findsen um nokkurt skeið og við rannsókn málsins hafi hún meðal annars hlerað símtöl Findsen. Findsen lét af störfum ásamt tveimur öðrum háttsettum mönnum innan leyniþjónustunnar árið 2020 eftir að í ljós kom að þeir hafi mögulega brotið lög og haldið upplýsingum frá aðilum sem hafa eftirlit með stofnuninni. Verði Findsen fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi.
Danmörk Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Sjá meira