Innlent

Svona var 194. upp­lýsinga­fundurinn vegna Co­vid-19

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Víðir, Þórólfur og Alma standa vaktina á enn einum upplýsingafundinum í dag.
Víðir, Þórólfur og Alma standa vaktina á enn einum upplýsingafundinum í dag. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar í dag vegna faraldurs kórónuveirunnar. Fundurinn verður haldinn klukkan ellefu.

Á fundinum munu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn Almannavarna, og Alma Möller landlæknir fara yfir stöðu mála.

Fundurinn verður haldinn með fjarfundarsniði og verður sýnt frá honum í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Þá verður bein textalýsing hér að neðan. Um er að ræða 194. upplýsingafundinn vegna faraldursins.

Uppfært: Fundinum er lokið en hér má sjá upptöku af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×