Óvæntir markaskorarar er Liverpool gekk frá Brentford Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. janúar 2022 15:55 Liverpool skoraði þrjú í dag. EPA-EFE/Chris Brunskill Liverpool vann öruggan 3-0 sigur á Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýliðunum tókst að halda heimamönnum í skefjum framan af leik á Anfield en undir lok fyrri hálfleiks kom Brasilíumaðurinn Fabinho heimamönnum yfir þegar hann skallaði hornspyrnu Trents Alexander-Arnold í netið, staðan 1-0 í hálfleik. Liverpool var mun betri aðilinn í síðari hálfleik en þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka tvöfaldaði Alex Oxlade-Chamberlain forystuna. Aftur var um skallamark að ræða og aftur kom stoðsendingin frá bakverði, að þessu sinni frá Andrew Robertson. 74 Subs on 77 Scores to make it 3-0Takumi Minamino joins the fun with a goal on his birthday pic.twitter.com/Ul6JZWUFgE— B/R Football (@brfootball) January 16, 2022 Nokkrum mínútum síðar gerði varamaðurinn og afmælisbarnið Takumi Minamino út um leikinn með þriðja marki heimamanna eftir skemmtilegt samspil. Hann og Roberto Firmino tóku skemmtilegt þríhyrningsspil sem endaði með að Minamino lagði knöttinn snyrtilega í netið. Staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur á Anfield. Liverpool er komið upp fyrir Chelsea í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 45 stig, 11 stigum minna en Manchester City sem trónir á toppi deildarinnar. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti