Innlent

Orri vill leiða lista Fram­sóknar í Kópa­vogi

Atli Ísleifsson skrifar
Orri Vignir Hlöðversson.
Orri Vignir Hlöðversson. Aðsend

Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja, gefur kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orra. Segir að Orri, sem fæddur sé árið 1964, hafi lokið BA-námi í alþjóðastjórnmálum og hagfræði frá Kaliforníuháskóla árið 1993. 

„Hann hefur gengt starfi forstjóra Frumherja hf. síðastliðin 15 ár og er auk þess í hluthafahópi félagsins. Fyrir tíma sinn hjá Frumherja sinnti Orr istarfi bæjarstjóra í Hveragerði í fjögur ár. Þar á undan starfaði hann sem framkvæmdastjóri Fjárvaka, félags innan samstæðu Kaupfélags Skagfirðinga. Orri bjó einnig í Brussel í nokkur ár þar sem hann starfaði fyrst hjá Framkvæmdastjórn ESB og síðar sendiráði Bandaríkjanna. 

Orri er alinn upp í Kópavogi og hefur búið í bænum mestan hluta ævi sinnar. Hann hefur lengi tekið virkan þátt í félagsstörfum. Sem dæmi gegndi Orri stjórnarformennsku knattspyrnudeildar Breiðabliks í Kópavogi um árabil. Hann gegnir enn trúnaðarstörfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem stjórnarformaður Íslensks toppfótbolta og stjórnarmaður KSÍ,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Orra Vigni að það sé með mikilli eftirvæntingu sem hann bjóði sig fram til að leiða lista Framsóknar í Kópavogi í vor. „Ég hef sterka tengingu við bæinn og hef fylgst náið með vexti hans og viðgangi um langt skeið. Mínar áherslur eru á vandaða og gegnsæja stjórnsýslu, ráðdeildarsemi í rekstri og hátt þjónustustig til íbúa í öllum málaflokkum. Ég er til þjónustu reiðubúinn og legg á vogarskálarnar mína reynslu, þekkingu og styrk,“ er haft eftir Orra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×