Hún leiðir A-lista sem uppstillingarnefnd Eflingar lagði fram um miðjan janúar og samþykktur var af stjórn félagsins og trúnaðarráði. Þá hyggst Guðmundur Jónatan Baldursson, stjórnarmaður í félaginu, setja saman lista og bjóða sig fram til formanns.
Ólöf Helga var nýbúin að heyra af framboðstilkynningu Sólveigar Önnu þegar Vísir náði tali af henni í morgun.
„Ég held að þetta komi kannski ekki mikið á óvart en maður fangar bara því að félagsmenn hafi val, þetta verður bara spennandi.“
Mikið hefur verið fjallað um ólgu meðal starfsmanna Eflingar og vantraustsyfirlýsingu sem leiddi til þess að Sólveig Anna og Viðar Þorsteinsson, þáverandi framkvæmdastjóri, sögðu af sér.
Leggja áherslu á að starfsfólki Eflingar líði vel
Vísir greindi frá því um miðjan janúar að uggur væri í starfsfólki á skrifstofu Eflingar um mögulega endurkomu Sólveigar Önnu en köldu andar enn á milli flestra þar inni og fyrrverandi formannsins eftir atburði vetrarins.
Aðspurð um þetta segist Ólöf Helga ekki vilja tjá sig mikið um líðan annarra starfsmanna.
„Ég held að það sé best að þau fái að gera það en við höfum lagt meiri áherslu á að finna leiðir til að láta starfsfólkinu líða betur og hafa betri vinnustað.“ Ólöf Helga tók við sem varaformaður í stað Agniezska Ewa Ziólkowsk þegar hún fór í formannsstólinn eftir brotthvarf Sólveigar Önnu.
Ólöf Helga segir að á næstu dögum sé von á niðurstöðu vinnustaðaúttektar sem hafi byrjað fljótlega eftir að Sólveig Anna og Viðar yfirgáfu félagið. Ólöf segir að þörf hafi verið á nýrri úttekt eftir þessar miklu vendingar.
„Þetta voru aðstæður sem komu svolítið flatt upp á fólk, það bjóst enginn við þessu þannig að það var þörf á þessu á þessum tíma. Þetta snýst ekkert um fyrrverandi formann eða framkvæmdastjóra heldur bara líðan starfsfólks og það vinnuumhverfi sem Efling býður upp á.“
A-listinn leggi mikið upp úr því að gott vinnuumhverfi ríki þar innanhúss.
„Að sjálfsögðu. Við erum náttúrulega verkalýðsfélag og viljum að vinnuumhverfi og starfsaðstæður fyrir félagsmenn séu í lagi, og að sjálfsögðu gerum við sömu kröfur til okkar sjálfra sem vinnuveitendur,“ segir Ólöf Helga.
Ætla nú að setja aukinn kraft í kynningarstarf
Ólöf Helga segir að A-listinn muni leggja mikla áherslu á húsnæðismál í kosningabaráttu sinni og tala bæði fyrir aukinni uppbyggingu á fasteigna- og leigumarkaði.
„Við viljum fá leiguþak svo það sé ekki endalaust hægt að hækka leiguna óháð því hvernig laun eru í landinu. Við viljum fá sektir fyrir launaþjófnað, við viljum lækka skattbyrði, sérstaklega lágtekjufólks meðal annars.“
Þá verði sjónum meðal annars beint að lífeyrismálum en nú sé unnið að því að gefa út kynningarefni fyrir framboðslistann.
„Við höfum bara verið í rólegheitum að vinna það núna undanfarið en fyrst það eru komin önnur framboð þá þurfum við að fara að drífa þetta út,“ segir Ólöf Helga.