Innlent

Þór­dís Lóa vill á­fram leiða lista Við­reisnar í borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs. Aðsend

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, hefur ákveðið að bjóða sig fram til að áfram leiða lista Viðreisnar í Reykjavík í prófkjöri flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Í tilkynningu frá Þórdísi Lóu segir að hún brenni fyrir borg sem rúmi fjölbreytta flóru einstaklinga – opnu og frjálsu samfélagi sem taki stór skref í átt að raunverulegum aðgerðum í loftslagsmálum, húsnæðismálum, skipulagsmálum, skóla- og velferðarmálum. 

„Öll mín hugsjón miðar að endingu að lifandi og skemmtilegri borg. Þessi mál vil ég nálgast með jafnrétti og mannréttindi að leiðarljósi, fyrir mér er það aldrei kvöð og kostnaður fyrir samfélagið, heldur tækifæri og alvöru fjárfesting.

Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, af hagsmunabaráttu og stjórnun stærri og minni fyrirtækja ásamt því að hafa í áratug stýrt velferðarþjónustu í Reykjavík. 

Þetta kjörtímabil hef ég leitt starf Viðreisnar í borginni og lagt mig fram við að skoða ólík sjónarmið til að komast að farsælum lausnum. Framtíðin leynist í samvinnu margra flokka, og ég bý yfir yfirsýninni sem þarf til að sú samvinna beri árangur. Með þá þekkingu og reynslu í farteskinu langar mig að byggja frjálst og réttlátt borgarsamfélag. Þess vegna býð ég fram krafta mína í komandi sveitarstjórnarkosningar,“ er haft eftir Þórdísi Lóu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×