Innlent

1.367 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
BE3A7121 (4)
Vísir/Vilhelm

1.367 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 132 á landamærum.

Frá þessu segir á síðunni covid.is. 11.611 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.373 á föstudaginn þegar síðan var síðast uppfærð. 7.954 eru nú í sóttkví, en voru 7.388 á föstudaginn. 166 eru nú í skimunarsóttkví.

42 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 58 prósent utan sóttkvíar.

31 er nú á sjúkrahúsi með Covid-19, en var 21 á föstudaginn. Þrír eru á gjörgæslu.

Alls hafa 78.201 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á þarsíðasta ári. Nítján prósent íbúa hafa nú greinst með Covid-19. Fimmtíu hafa látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 5.118 en var 4.824 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 213, samanborið við 220 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×