Kai Havertz tryggði Chelsea heimsmeistaratitilinn í framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. febrúar 2022 19:12 Kai Havertz reyndist hetja Chelsea. Matthew Ashton - AMA/Getty Images Kai Havertz reyndist hetja Chelsea þegar hann tryggði liðinu 2-1 sigur gegn brasilíska liðinu Palmeiras í úrslitaleik HM félagsliða af vítapunktinum í kvöld.
Enn var markalaust að fyrri hálfleik loknum, en Romelu Lukaku kom Chelsea yfir þegar síðari hálfleikur var um tíu mínútna gamall eftir stoðsendingu frá Callum Hudson-Odoi. Brassarnir voru þó ekki lengi að jafna metin. Tæpum tíu mínútum eftir mark Lukaku fengu liðsmenn Palmeiras vítaspyrnu og Raphael Veiga skoraði af miklu öryggi fram hjá Edouard Mendy í marki Chelsea. Þetta reyndist seinasta mark venjulegs leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af síðari hálfleik framlengingarinnar fékk Chelsea vítaspyrnu. Kai Havertz tók spyrnuna og kom sínum mönnum í 2-1 forystu. Leikmenn Palmeiras þurftu svo að leika seinustu sekúndur leiksins manni færri eftir að Luan fékk að líta beint rautt spjald í uppbótartíma framlengingarinnar, en það breytti engu um úrslit leiksins. Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Chelsea og liðið tryggði sér þar með heimsmeistaratitil félagsliða.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hættur með landsliðið Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fær ekki að eyða í leikmenn í janúar Liverpool og Newcastle berjast um Mbeumo Fengu ljót skilaboð eftir óléttumynd: „Fyrirmunað að skilja þessi viðbrögð“ Guardiola framlengir við Man. City Klopp vildi fá Antony í stað Salah Sjá meira