Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Árni Sæberg skrifar 20. febrúar 2022 18:44 Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör í dag. Aðsend Brynja Hjálmsdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2022 fyrir ljóð sitt Þegar dagar aldrei dagar aldrei. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag en tuttugu ára afmæli hátíðarinnar er fagnað um þessar mundir.
Jakub Stachowiak hlaut önnur verðlaun fyrir ljóðið Dreymt á jafndægurnótt og þriðja sæti hlaut Elín Edda Þorsteinsdóttir fyrir ljóðið Kannski varstu allan tímann nálægt. Að auki hlutu sjö ljóð sérstaka viðurkenningu dómnefndar: Svefnrof eftir Draumeyju Aradóttur, Getraunir eftir Guðrúnu Brjánsdóttur, Vista Canale eftir Hallgrím Helgason, Kvöldganga að hausti eftir Jón Hjartarson, Það sem ég á við með með orðinu hjónasæng eftir Ragnar H. Blöndal og Silfurstrengir og A-hús eftir Sigrúnu Björnsdóttur. Dómnefnd skipuðu að þessu sinni Ásta Fanney Sigurðardóttir (formaður), Anton Helgi Jónsson og Kristín Svava Tómasdóttir. Ljóð í keppninni mega ekki hafa birst áður og þau skulu send inn undir dulnefni höfundar. Að þessu sinni bárust 212 ljóð í keppnina. Þá voru verðlaun einnig veitt í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Fyrstu verðlaun hlaut Friðjón Ingi Guðjónsson, 10. bekk Álfhólsskóla fyrir ljóðið Hugmynd.
Kópavogur Ljóðlist Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira