FH og HK skoruðu fjögur í öruggum sigrum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. febrúar 2022 21:01 FH vann góðan sigur í kvöld. Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt marka liðsins. Vísir/Hulda Margrét Tveimur af þremur leikjum kvöldsins í Lengjubikar karla í fótbolta er nú lokið. FH og HK skoruðu bæði fjögur mörk er liðin unnu örugga sigra.
HK mætti Þrótti Vogum í riðli 1 í A-deild keppninnar en bæði lið leika í Lengjudeildinni næsta sumar. Leikið var í Kórnum og unnu heimamenn sannfærandi 4-0 sigur eftir að hafa verið 1-0 yfir í hálfleik, Örvar Eggertsson með markið. Mörkin þrjú sem skoruðu voru í síðari hálfleik komu öll þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka. Valgeir Valgeirsson skoraði annað markið, Örvar þriðja og Ásgeir Marteinsson fjórða markið. Var þetta fyrsti sigur HK í þremur leikjum en liðið er nú í 4. sæti riðilsins með þrjú stig. Þróttur Vogum situr á botni riðilsins án stiga eftir að hafa leikið fjóra leiki. Í Skessunni í Hafnafirði var Grindavík í heimsókn en liðin leika í riðli 4 í A-deild. FH mun leika í Bestu-deildinni næsta sumar meðan gestirnir eru í Lengjudeildinni. Það kom því ekki á óvart að FH skildi fara með sigur af hólmi, lokatölur 4-1 heimamönnum í vil. FH skoraði tvívegis á fyrstu tíu mínútum leiksins, Kristinn Freyr Sigurðsson og Baldur Logi Guðlaugsson með mörkin. Gestirnir minnkuðu muninn um miðbik fyrri hálfleiks þökk sé marki Kairo Asa Jacob Edwards-John. Steven Lennon bætti við marki fyrir FH undir lok fyrri hálfleiks og staðan 3-1 í hálfleik. Matthías Vilhjálmsson skoraði fjórða mark FH í upphafi síðari hálfleiks og ljóst að sigurinn væri í höfn, lokatölur 4-1. FH er með sjö stig í 2. sæti eftir þrjá leiki á meðan Grindavík er í 5. sæti án stiga eftir jafn marga leiki.
Fótbolti Íslenski boltinn FH HK Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira