Heilsusamlegir smoothies fyrir okkur og jörðina Ísam 1. mars 2022 10:09 innocent smoothies eru stútfullir af vítamínum og trefjum. Heilsuvara vikunnar á Vísi er innocent Smoothies. innocent smoothies eru stútfullir af vítamínum og trefjum. Þá hefur innocent aldrei sett viðbættan sykur út í drykki og mun aldrei gera. Drykkirnir fást í átta mismunandi bragðtegundum og hægt er að velja sér sinn smoothie eftir því hvað hentar hverjum degi, til dæmis með góðgerlum, blátt spirulina eða engifer.
Tvær nýjungar eru nú að koma á markað sem innihalda 30% minni ávaxtasykur en aðrir smoothies. Sú minnkun á ávaxtasykri næst meðal annars með því að nota í uppskriftirnar ávexti sem innihalda minni ávaxtasykur frá náttúrunnar hendi. Nýju vörurnar heita Lift up og On Guard og innihalda meðal annars vatnsmelónur, perur, ananas og túrmerik. Þær munu koma í flestar verslanir á næstu dögum. innocent hefur framleitt safa og smoothies í tvo áratugi úr úrvals hráefni með heilsu- og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að sýna samfélagslega ábyrgð og hefur frá upphafi gefið 10% af hagnaði sínum til góðgerðarmála og hefur stutt verkefni í þeim löndum þar sem vörur þeirra eru á markaði. Á innocentfoundation.org er hægt að kynna sér verkefni sem að fyrirtækið hefur styrkt en þeirra markmið er að veita styrki til fólks sem býr við fátækt og hungursneyð. Umhverfismál eru mikilvægur partur af stefnu fyrirtækisins og hefur innocent til að mynda lagt áherslu á að minnka notkun plastefna í umbúðir og beinir öllum viðskiptum sínum að „Fair Traid“ og gæðavottuðum býlum. Ný og umhverfisvæn verksmiðja innocent rís í Hollandi Umhverfisstefna innocent er í stöðugri þróun og stefnir innocent á opnun nýrrar verksmiðju sem þau kalla Blandarann eða The blender. Nýja verksmiðjan byggir á grundvallarstefnu innocent sem er að stunda góð viðskipti, fyrir fólkið og fyrir umhverfið. Með nýju verksmiðjunni skapast yfir tvö hundruð ný störf í Hollandi. Sérstaða innocent felst meðal annars í framleiðsluaðferðum en Blandarinn keyrir eingöngu á 100% raforku frá endurnýjanlegum auðlindum, sólarrafhlöðum og vindmyllum, ólíkt flestum matvæla- og drykkjarframleiðendum sem nota gas eða aðra kolefnismikla orkugjafa. Áætlað er að draga úr orkuþörf og endurnýta þá orku, sem notuð er við framleiðsluna eins og mögulegt er. Framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar voru kolefnisjafnaðar og innocent áætlar að verða fyrsta fyrirtækið í heiminum til þess að annast flutninga á hráefnum með umhverfisvænum flutningabílum. Þá verða pípulagnir í verksmiðjunni hreinsaðar að miklu leyti með lofti, sem minnkar vatnsnotkun fyrirtækisins um 75%. Dregið verður úr úrgangi eins og kostur er, meðal annars með endurvinnslu. Orkustefna fyrirtækisins endurskoðuð frá grunni Fyrirtækið tók orkustefnu sína í gegn fyrir nýju verksmiðjuna og beindi athyglinni að þremur megin þáttum. Hvernig draga mætti úr orkuþörf og endurnýta þá orku sem fellur til við framleiðsluna. Til dæmis verður hitinn frá kælikerfum nýttur til að gerilsneyða drykki. Fjárfestingu í endurnýjanlegri orku, meðal annars sólarrafhlöðum og vindmyllum. Lágmarka og jafna innbyggt kolefni. Yfir 50% af heildarkolefni verksmiðjunnar liggur í steyptri undirbyggingu og stálgrindarbyggingu og því var sú kolefnislosun sem stafar af efnisvinnslu, efnisframleiðslu, flutningi og uppsetningu á staðnum, minnkuð í gegnum viðhald og efnisförgun. Tvö hundruð ný störf Með nýju verksmiðjunni skapast yfir tvö hundruð ný störf í Hollandi. Áhersla er lögð á einstaka vinnustaðamenningu sem byggir á valdeflingu, trausti og samvinnu. Unnið er á vöktum allan sólarhringinn en andrúmsloftið á að vera afslappað, m.a. verður boðið upp á jógatíma. Einnig verður hugað að loftgæðum, hollum mat, hvíldarsvæðum og vatnspóstum og mögulega verður sett upp aðstaða til líkamsræktar á staðnum. Gegnsæi til góðs fyrir alla Blandarinn á að vera skínandi dæmi um sjálfbæra verksmiðju sem verði öðrum fyrirmynd. Upplýsingar um tæknina sem notuð verður, bæði það sem tekst vel og það sem mistekst, verða aðgengilegar öllum, einnig samkeppnisaðilum því markmið innocent er að nýta krafta fyrirtækisins til góðs fyrir mannkynið og jörðina.
Heilsa Matur Mest lesið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fleiri fréttir Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira