Uppskriftin þarf ekkert endilega að vera kossar og snerting heldur nær skilgreining yfir allar þær athafnir sem örva kynferðislega.
Líffræðilega þurfa konur yfirleitt meiri örvun og lengri tíma þegar kemur að kynlífi og hefur það stundum verið sagt að karlar hafi kannski ekki eins mikla þörf fyrir forleik og konur.
Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hversu mikilvægur forleikur er í kynlífi og tóku rúmlega tvöþúsund manns þátt í könnuninni.
Eins og sjá má í niðurstöðunum hér fyrir neðan er ekki greinanlegur munur á svörum karla og kvenna og segja um 70% forleikinn mikilvægan eða mjög mikilvægan.
Niðurstöður*
Karlar
Mjög mikilvægur, kýs alltaf forleik - 38%
Mikilvægur, vil yfirleitt forleik - 30%
Bæði og, fer eftir stemmningu - 28%
Ekki mikilvægur, kýs sjaldnast forleik - 4%
Konur
Mjög mikilvægur, kýs alltaf forleik - 41%
Mikilvægur, vil yfirleitt forleik - 25%
Bæði og, fer eftir stemmningu - 28%
Ekki mikilvægur, kýs sjaldnast forleik - 6%
Auðvelt að festast í sömu rútínunni
Það er auðvelt fyrir pör að festast í ákveðinni rútínu í kynlífi og því um að gera að reyna að hugsa út fyrir boxið og leyfa sér að leika þegar kemur að forleiknum.
Stundum gæti verið gaman að byrja forleikinn snemma um daginn með því að senda daðursleg skilaboð á milli. Segðu frá því hvað þig langar að gera og hvernig. Leyfðu þér að fantasera og komdu sjálfum þér og bólfélagnum/makanum á óvart.
Að koma inn ákveðinni spennu og eftirvæntingu verður til þess að þegar þið svo hittist eru jafnvel bæði orðin mikið örvuð.

Mikilvægt að gefa sér góðan tíma
Rólegt nudd, olíur og sexí tónlist gerir einnig mikið fyrir stemmninguna og um að gera að taka sér góðan tíma í að kanna líkama hvors annars og finna hvað það er sem örvar og veitir unað.
Þegar fólk tekur sér lengri tíma í kynlíf myndast oft á tíðum meiri nánd á milli fólks og verður jafnvel auðveldara fyrir einhverja að segja hvað þeim finnst gott og ná því að njóta kynlífsins betur.
Ertu búin(n) að svara nýjustu Spurningu vikunnar?
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Allar kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.