Lífið

Pamela Anderson fer af ströndinni á Broadway

Elísabet Hanna skrifar
Pamela er spennt að leika Roxie Hart í Chicago.
Pamela er spennt að leika Roxie Hart í Chicago. Getty/ Fotonoticias

Pamela Anderson ætlar að stíga á svið á Broadway í fyrsta skipti þar sem hún mun leika Roxie Hart í söngleiknum Chicago. Leikkonan er spennt fyrir því að fara með hlutverkið þar sem hún mun leika, syngja og dansa.

Í kvikmyndinni Chicago sem kom út árið 2002 fór Renee Zellweger með hlutverkið sem Pamela fer með í sviðsuppsetningunni. 

„Að leika Roxie Hart er að uppfylla draum,“

segir Pamela. Hún bætir því við að það sé erfitt að syngja, dansa og hugsa á sama tíma svo hún geti ekki farið að ofhugsa hlutina á sviðinu. Hún segir það vera frelsi og gleði í því að vita að þetta snúist allt um vinnuna. Pamelu finnst hlutverkið vera ljúfur flótti fyrir sig þar sem hún geti gleymt sér í því. 

Nýverið komu þættirnir Pam & Tommy út sem eru byggðir á sambandi hennar og Tommy Lee á ákveðnum tímapunkti í lífinu. Þættirnir hafa vakið lukku en ekki hjá Pamelu sjálfri sem hafði engan áhuga á því að tengjast þáttunum og hefur samkvæmt heimildum ekki áhuga á því að horfa á þá.


Tengdar fréttir

Pam & Tommy: Magni-ficent sjónvarp!

Sem lífstíðar Stjörnustríðs fanatíker átti ég seint von á að ég tæki Mötley Crüe og Baywatch fram yfir Star Wars, en s.l. miðvikudag komu samtímis inn á Disney+/STAR nýir þættir af The Book of Boba Fett og Pam & Tommy. Það er skemmst frá því að segja að ég horfði á Pam & Tommy fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.