Náttúruleg leið að betri húð, heilsu og vellíðan CBDReykjavík 16. mars 2022 08:50 Heilsuvara vikunnar á Vísi. Cbd vörur njóta mikilla vinsælda en þær hafa reynst vel við ýmiskonar kvillum. Þau Arnþór Haukdal og Karlotta Bridde kynntust því af eigin raun og stofnuðu í kjölfarið CBD Reykjavík. Vörurnar frá CBD Reykjavík eru heilsuvara vikunnar á Vísi. „Algengustu kvillar sem fólk nefnir við okkur eru bólgur og verkir, svefnvandamál og kvíði en flóran er miklu meiri. Árangurinn fer ekkert á milli mála. Eins er stór hópur fólks þarna úti sem er undir miklu álagi bæði í vinnu og námi, líkamlegu og andlegu álagi sem nýtir sér vörurnar okkar með góðum árangri. Á Íslandi eru enn reglur sem kveða á um að cbd vörur séu vottaðar og seldar sem snyrtivörur. Þessum reglum fylgjum við í einu og öllu. Mikil umræða undanfarin ár gefur þó góða von um að þessu verði breytt og almenn sala sem fæðubót verði leyfð fyrr en síðar,“ segir Arnþór. Hann hefur sjálfur góða reynslu af notkun cbd olíu. „Ég lenti ungur í bílslysi og hafði svefn ekki verið sem bestur síðan þá vegna verkja í baki. Ég hafði litla trú á svona hlutum og kallaði þetta „snákaolíu“ þegar fólk nefndi cbd við mig. Þegar ég þurfti svo í aðgerð á öxl nýlega var mér gefið eitt glas af cbd olíu, á tveimur vikum var ég verkjalyfjalaus og farinn að sofa eins og engill. Ég hef notað hana stöðugt eftir þetta og hafa lífsgæðin aukist til muna. “ segir Arnþór. Karlotta hafi í kjölfarið ákveðið að prófa en hún hafði greinst með sjaldgæft risafrumuæxli í beini við úlnlið sem olli miklum taugaverkjum. „Það er líka mikið áfall að fá slíka greiningu og vegna mikillar óvissu um bata þróaði hún með sér mikinn kvíða. Ég horfði hins vegar á hana brjótast út úr sinni vanlíðan á þremur mánuðum með notkun olíunnar og þá var ekki aftur snúið. Við hreinlega settum aleiguna í að stofna fyrirtækið. CBD Reykjavík er byggt frá grunni af okkur, af hugsjón,“ segir Arnþór. Mikill léttir að losna undan áralangri vanlíðan Fyrirtækið hóf starfsemi síðasta sumar. Lífræn framleiðslan fer fram í Evrópu og fylgja Arnþór og Karlotta ferlinu eftir frá akri ofan í glas. Vörurnar eru síðan rannsakaðar af þriðja aðila í Bretlandi þar sem innihald er staðfest og vottað. Viðtökurnar við CBD Reykjavík létu ekki á sér standa. Skilaboðum frá ánægðum viðskiptavinum rignir yfir Arnþór og Karlottu. „Maður verður klökkur yfir þessum reynslusögum, þetta hjálpar ekki öllum en svo ótrúlega mörgum. Það er svo mikill léttir fyrir fólk að losna við vanlíðan sem hefur kannski varað í mörg ár,“ segir Arnþór. Snyrtivörur, olía og vöðvakrem Vörulína CBD Reykjavík samanstendur af cbd olíu, andlitskremi, líkamskremi og vöðva- og liðakremi. Andlitskremið vinnur gegn fínum línum, eykur teygjanleika húðarinnar og hjálpar til við að vinna gegn bólum. Þá hefur kremið reynst afar vel við exemi, psoriasis og þurrki. Líkamskremið hefur marga af sömu kostum andlitkremsins en er meira ætlað gegn m.a. þurrki, exzemi og psoriasis Vöðva- og liðakremið virkar vel fyrir endurheimt og er gott að bera á liði og vöðva bæði fyrir og eftir átök. Kremið er einnig verkjastillandi við gigtarverkjum og vöðvabólgu. Cbd-olían er vinsælasta varan en hún fæst í þremur styrkleikum og bæði með sítrónu og myntu. Þá bjóðum við einnig sportolíu fyrir íþróttafólk sem æfir mikið. Vörurnar frá CBD Reykjavík fást í vefverslun þeirra www.cbdrvk.is, í apótekum Lyfsalans, Apóteki Garðabæjar og Akureyrarapóteki, Sjóböðunum á Húsavík og í Eftirlæti á Sauðárkróki. Þá eru vörurnar væntanlegar á fleiri sölustaði innan tíðar. Heilsa Mest lesið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Lífið samstarf Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Sjá meira
„Algengustu kvillar sem fólk nefnir við okkur eru bólgur og verkir, svefnvandamál og kvíði en flóran er miklu meiri. Árangurinn fer ekkert á milli mála. Eins er stór hópur fólks þarna úti sem er undir miklu álagi bæði í vinnu og námi, líkamlegu og andlegu álagi sem nýtir sér vörurnar okkar með góðum árangri. Á Íslandi eru enn reglur sem kveða á um að cbd vörur séu vottaðar og seldar sem snyrtivörur. Þessum reglum fylgjum við í einu og öllu. Mikil umræða undanfarin ár gefur þó góða von um að þessu verði breytt og almenn sala sem fæðubót verði leyfð fyrr en síðar,“ segir Arnþór. Hann hefur sjálfur góða reynslu af notkun cbd olíu. „Ég lenti ungur í bílslysi og hafði svefn ekki verið sem bestur síðan þá vegna verkja í baki. Ég hafði litla trú á svona hlutum og kallaði þetta „snákaolíu“ þegar fólk nefndi cbd við mig. Þegar ég þurfti svo í aðgerð á öxl nýlega var mér gefið eitt glas af cbd olíu, á tveimur vikum var ég verkjalyfjalaus og farinn að sofa eins og engill. Ég hef notað hana stöðugt eftir þetta og hafa lífsgæðin aukist til muna. “ segir Arnþór. Karlotta hafi í kjölfarið ákveðið að prófa en hún hafði greinst með sjaldgæft risafrumuæxli í beini við úlnlið sem olli miklum taugaverkjum. „Það er líka mikið áfall að fá slíka greiningu og vegna mikillar óvissu um bata þróaði hún með sér mikinn kvíða. Ég horfði hins vegar á hana brjótast út úr sinni vanlíðan á þremur mánuðum með notkun olíunnar og þá var ekki aftur snúið. Við hreinlega settum aleiguna í að stofna fyrirtækið. CBD Reykjavík er byggt frá grunni af okkur, af hugsjón,“ segir Arnþór. Mikill léttir að losna undan áralangri vanlíðan Fyrirtækið hóf starfsemi síðasta sumar. Lífræn framleiðslan fer fram í Evrópu og fylgja Arnþór og Karlotta ferlinu eftir frá akri ofan í glas. Vörurnar eru síðan rannsakaðar af þriðja aðila í Bretlandi þar sem innihald er staðfest og vottað. Viðtökurnar við CBD Reykjavík létu ekki á sér standa. Skilaboðum frá ánægðum viðskiptavinum rignir yfir Arnþór og Karlottu. „Maður verður klökkur yfir þessum reynslusögum, þetta hjálpar ekki öllum en svo ótrúlega mörgum. Það er svo mikill léttir fyrir fólk að losna við vanlíðan sem hefur kannski varað í mörg ár,“ segir Arnþór. Snyrtivörur, olía og vöðvakrem Vörulína CBD Reykjavík samanstendur af cbd olíu, andlitskremi, líkamskremi og vöðva- og liðakremi. Andlitskremið vinnur gegn fínum línum, eykur teygjanleika húðarinnar og hjálpar til við að vinna gegn bólum. Þá hefur kremið reynst afar vel við exemi, psoriasis og þurrki. Líkamskremið hefur marga af sömu kostum andlitkremsins en er meira ætlað gegn m.a. þurrki, exzemi og psoriasis Vöðva- og liðakremið virkar vel fyrir endurheimt og er gott að bera á liði og vöðva bæði fyrir og eftir átök. Kremið er einnig verkjastillandi við gigtarverkjum og vöðvabólgu. Cbd-olían er vinsælasta varan en hún fæst í þremur styrkleikum og bæði með sítrónu og myntu. Þá bjóðum við einnig sportolíu fyrir íþróttafólk sem æfir mikið. Vörurnar frá CBD Reykjavík fást í vefverslun þeirra www.cbdrvk.is, í apótekum Lyfsalans, Apóteki Garðabæjar og Akureyrarapóteki, Sjóböðunum á Húsavík og í Eftirlæti á Sauðárkróki. Þá eru vörurnar væntanlegar á fleiri sölustaði innan tíðar.
Vörurnar frá CBD Reykjavík fást í vefverslun þeirra www.cbdrvk.is, í apótekum Lyfsalans, Apóteki Garðabæjar og Akureyrarapóteki, Sjóböðunum á Húsavík og í Eftirlæti á Sauðárkróki. Þá eru vörurnar væntanlegar á fleiri sölustaði innan tíðar.
Heilsa Mest lesið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Lífið samstarf Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Sjá meira