Laxadauða í Dýrafirði megi rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 18. mars 2022 08:34 Um mánaðamót febrúar og mars höfðu rúm 2.400 tonn af laxi í sjókvíeldi Arctic Sea Farm í Dýrafirði drepist. Vísir/Vilhelm Dauða meira en 2.400 tonna af laxi laxeldisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði má rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta, þar á meðal stærðar fiskanna, krónískrar hjarta- og vöðvabólgu og lágs sjávarhita.
Greint var frá því um miðjan febrúar að hátt í tvö þúsund tonn af laxi hafi drepist í tveimur sjókvíum Arctic Sea Farm en sú tala nú hækkað um í rúm 2.400 tonn. Alls voru um 10 þúsund tonn af laxi í þessum sjókvíum Arctic Fish og afföllin því í kring um 25 prósent. Matvælastofnun barst tilkynning vegna málsins frá Arctic Sea Farm þann 19. janúar síðastliðinn. Hóf stofnunin þá eftrigrennslan og óskaði eftir upplýsingum um heilbrigðisástand og niðurstöður eftirlits dýralækna í eldisstöðvum fyrirtækisins í Dýrafirði. Fram kemur í tilkynningu frá Mast að fram að þessu hafi afföll í sjókvíunum verið fremur lítil, eða um 0,25 prósent. Sýni voru tekin úr fiskunum sem send voru til rannsóknar á Keldum. Í niðurstöðum kom fram að fremur slæmt ástand væri á tálknum g vefjabreytingar í hjarta og blóðsókn í önnur líffæri benti þá til þess að fiskurinn væri með hjarta- og vöðvabólgu. Fram kemur í tilkynningunni að veiran sem veldur bólgunni, Piscine Reo Virus, sé útbreidd bæði hjá eldislöxum og í náttúrulegu umhverfi og sé því ekki tilkynningarskyld. Í kjölfar rannsóknanna hafi tekið við óveðurstímabil sem aukið hafi afföll. Matvælastofnun komst að þeirri niðurstöðu 23. janúar eftir klíníska skoðun að rekja mætti afföllin til nokkurra megin þátta. Laxinn væri stór í miklu magni, sjávarhiti hafi verið sérstaklega lágur og veður og sjólag vont. Þá hafi hluti fisksins verið hnadleikinn við flutninga og lúsaböðun í nóvember. Þessir þættir auk minni afköstum hjartavöðvans í laxinum sökum krónískrar hjarta- og vöðvabólgu og tálknabólgu hafi laxinn verið sérlega viðkvæmur fyrir streitu og hnjaski. Strax þegar niðurstöður lágu fyrir í janúar gaf Matvælastofnun leyfi fyrir því að sláturskipið Norwegian Gannet kæmi til Dýrafjarðar gil að sinna slátrun á fiskinum. Skipið hafi verið komið 14. febrúar og yfirgefið landið aftur 4. mars. Öllum fiski sem slátrað var um borð í Norwegian Gannet var landað í Bíldudal til pökkunar.
Sjávarútvegur Dýraheilbrigði Dýr Matvælaframleiðsla Fiskeldi Ísafjarðarbær Tengdar fréttir Íslenskir firðir eru að verða nýlendur norskra stórfyrirtækja Við lygnan fjörð í djúpum dal lúrir lítill en litríkur bær austur á fjörðum. Bær þessi sker sig úr að mörgu leyti fyrir sakir fjölbreytts menningarlífs og frjósams jarðvegs til listsköpunar, sem hefur laðað að sér innlenda og erlenda ferðamenn ár hvert. 14. mars 2022 11:00 Kaffikarlar fyrir vestan segja tafir stofnanafólks óeðlilegar „Það er alveg sama hvað við ætlum að reyna að fá. Við fáum aldrei neitt. Sérðu með laxeldið. Það eru bara einhverjir sportveiðimenn sem ráða því. Við viljum bara fá laxeldið í Djúpið,“ segir Pétur Runólfsson, einn karlanna sem við hittum að skrafi í Olís-búðinni í Bolungarvík. 9. mars 2022 23:15 Eignarhald í laxeldi á Íslandi Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein í örum vexti en mikill uppgangur hefur verið í fiskeldi á heimsvísu undanfarna áratugi. Gríðarleg framþróun hefur einnig orðið í laxeldi í nágrannalöndum okkar í Norður-Atlantshafi; laxeldi er til að mynda umfangsmeira í hagkerfi Noregs en hefðbundinn sjávarútvegur. 2. mars 2022 20:01 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Sjá meira
Íslenskir firðir eru að verða nýlendur norskra stórfyrirtækja Við lygnan fjörð í djúpum dal lúrir lítill en litríkur bær austur á fjörðum. Bær þessi sker sig úr að mörgu leyti fyrir sakir fjölbreytts menningarlífs og frjósams jarðvegs til listsköpunar, sem hefur laðað að sér innlenda og erlenda ferðamenn ár hvert. 14. mars 2022 11:00
Kaffikarlar fyrir vestan segja tafir stofnanafólks óeðlilegar „Það er alveg sama hvað við ætlum að reyna að fá. Við fáum aldrei neitt. Sérðu með laxeldið. Það eru bara einhverjir sportveiðimenn sem ráða því. Við viljum bara fá laxeldið í Djúpið,“ segir Pétur Runólfsson, einn karlanna sem við hittum að skrafi í Olís-búðinni í Bolungarvík. 9. mars 2022 23:15
Eignarhald í laxeldi á Íslandi Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein í örum vexti en mikill uppgangur hefur verið í fiskeldi á heimsvísu undanfarna áratugi. Gríðarleg framþróun hefur einnig orðið í laxeldi í nágrannalöndum okkar í Norður-Atlantshafi; laxeldi er til að mynda umfangsmeira í hagkerfi Noregs en hefðbundinn sjávarútvegur. 2. mars 2022 20:01