Innlent

Lög­regla telur sig komna með „þokka­lega skýra mynd“

Árni Sæberg skrifar
Sakborningur í manndrápsmáli í Breiðholti var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur að kvöldi 1. nóvember 2026 þar sem farið var fram á gæsluvarðhald.
Sakborningur í manndrápsmáli í Breiðholti var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur að kvöldi 1. nóvember 2026 þar sem farið var fram á gæsluvarðhald. Vísir/Viktor Freyr

Yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að lögregla telji sig komna með þokkalega skýra mynd á mannslát í Breiðholti um helgina.

Þrír menn voru handteknir aðfaranótt sunnudags grunaðir um aðild að manndrápi og alvarlegri líkamsárás. Einum þeirra hefur verið sleppt úr haldi en tveir þeirra, sem eru feðgar, sæta varðhaldi til 9. nóvember.

Lögreglu barst tilkynning um málið klukkan hálftvö um nóttina og voru tveir menn fluttir á slysadeild með alvarlega stunguáverka. Annar mannanna var úrskurðaður látinn skömmu síðar en hinn liggur enn á spítala þungt haldinn með nokkra stunguáverka.

E. Agnes Eide Kristjánsdóttir yfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að rannsókn málsins sé umfangsmikil en henni miði vel. Lögregla telji sig vera komna með þokkalega skýra mynd á það sem gekk á í Breiðholtinu umrætt kvöld.

Meðal þess sem nú sé til rannsóknar sé hvort allir aðilar málsins, hinn látni, hinn særði og hinir þrír handteknu, hafi verið í samfloti um kvöldið.

Líkt og greint hefur verið frá herma heimildir Vísis að lögregla hafi til rannsóknar hvort hinn látni og hinn særði hafi reynt að kúga fé út úr þeim sem grunaður er um að leggja til þeirra með hnífi. 

E. Agnes segir lögreglu ekkert geta fullyrt um það hvað leiddi til þess að til áfloga kom á milli mannanna, né heldur hver hafði upptök að þeim.

Þá hefur verið greint frá því að hinn látni hafi verið með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hann hefði um árabil búið á Spáni en nýlega snúið heim til Íslands. E. Agnes segir ekki tímabært að lögregla tjái sig um neitt slíkt.


Tengdar fréttir

Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka

Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöld í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni leikur grunur á að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem hafi reynt að kúga af honum fé í einhvern tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×