Lífið

Stjörnulífið: Hlustendaverðlaun, GusGus og skíðapartý

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnurnar voru að njóta lífsins út um allan heim þessa vikuna.
Stjörnurnar voru að njóta lífsins út um allan heim þessa vikuna. Samsett/Instagram

Aron Can vann tvenn Hlustendaverðlaun á laugardag og flutti nokkur lög á verðlaunahátíðinni sem fór fram í Kolaportinu.

Sýnt var frá Hlustendaverðlaununum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi en þeir sem misstu af hátíðinni geta horft á hana HÉR.

GDRN vann einnig tvenn verðlaun á laugardag, þar á meðal fyrir lagið Ef ástin er hrein. Söngkonan flutti lagið á hátíðinni ásamt Jóni Jónssyni.

Rikki G var kynnir kvöldsins ásamt Völu Eiríks sem sá um græna herbergið.

Patrekur Jaime hélt upp á 22 ára afmælið sitt um helgina.

Tindastuð fór fram á skíðasvæðinu Tindastóli í Skagafirði um helgina og Úlfur Úlfur, Floni og gugusar komu meðal annarsfram. Bankastræti Club var með popup á staðnum og LXS vinahópurinn gerði sér hópferð norður.

Gunnar Nelson keppti í UFC í London um helgina og vann. Með honum úti var stór hópur frá Mjölni. Edda Falak, Klara Elías og fleiri spókuðu sig því um London um helgina.

Reykjavíkurdætur gerðu upp Söngvakeppnina. Þær eru strax byrjaðar að bóka tónleika erlendis og taka upp nýja tónlist.

Inga Lind birti krúttlega hjónamynd. 

Auðunn Blöndal er með vinahópnum í Atlantic City. 

„Bugaðir en ekki búnir.“

Elísabet Gunnars fór rómantískt helgarfrí til Parísar. 

Sandra Helga hljóp maraþon í góða veðrinu í Los Angeles þar sem hún er búsett í augnablikinu.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður fékk að vera módel í lokaprófi sonar síns í hárgreiðslu. Magnús Andri var að klára sveinsprófið og er strax kominn með Instagram fyrir hárgreiðsluna. 

Natalie Hamzehpour sá um að farða Bríet fyrir Hlustendaverðlaunin á laugardag. Bríet vann þar verðlaunin poppflytjandi ársins og flutti svo nýja lagið sitt Flugdreki. 

Friðrik Dór er ánægður með aðdáendur sína og tónleikana í Hörpu.

Tinna Þorradóttir eyddi helginni á Stykkishólmi með fjölskyldunni.

Fanney Dóra birti skemmtilegar mæðgnamyndir. 

Pattra fékk pössun og skellti sér á langþráða GusGus tónleika.

Eva Mattadóttir fór líka á GusGus.

Egill Ploder og Þórdís Valsdóttir voru á meðal þeirra sem afhentu verðlaun á Hlustendaverðlaununum um helgina.

Sigga Beinteins fékk afhent heiðursverðlaun Hlustendaverðlaunanna í ár.

Íris Tanja fór í myndatöku hjá Dóru Dúnu. 

Emmsjé Gauti spilaði fimm gigg á einu kvöldi um helgina.

Tanja Ýr er búin að vera að koma sér vel fyrir í London síðustu daga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.