Lífið

Opna Sirkus á ný

Árni Sæberg og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa

Einn vinsælasti veitingastaður og bar Reykjavíkur til margra ára, Sirkus, hefur snúið aftur eftir fimmtán ára hlé.

Skemmtistaðurinn Sirkus opnaði á ný í Reykjavík í kvöld en hann hefur ekki verið starfræktur þar í fimmtán ár. Í millitíðinni var staðurinn til húsa hjá frændum okkar í Færeyjum og um skamman tíma á Seyðisfirði.

Sirkus opnar nú á nýjum stað við Lækjargötu en hann var áður á Klapparstíg, líkt og flestir reykvískir djammarar í flokknum 35 ára og eldri muna.

Fréttastofa kíkti við á Sirkus í kvöldfréttum þar sem útvaldir voru komnir saman í opnunarpartí. Fréttamaður rakst þar á Jóel Briem sem stendur að opnun staðarins ásamt Guðfinni Karlssyni eða Finna á Prikinu líkt og hann er oft kallaður. Innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Jóel Briem annar eigandi Sirkus.Vísir/Egill

Jóel segir rétta tímann vera nú til að opna Sirkus á ný og að fullkomið húsnæði hafi fundist undir starfsemina. „Við erum bara rosalega glöð,“ segir hann.

Hann segir að um sama gamla Sirkus sé að ræða en þó hafi staðurinn þróast aðeins. Í þetta skiptið verður einnig boðið upp á indverskan mat og í kjallaranum er aðstaða til að kasta pílum og leika ballskák.

Almenningi var hleypt inn á endurlífgaðan Sirkus klukkan sjö í kvöld og tónlist verður spiluð og bjórum dælt til klukkan þrjú í nótt. Plötusnúðurinn KGB þeytir skífum og óhætt er að gera ráð fyrir að fólk komi til með að skemmta sér vel fram á rauða nótt. 

„Það verður bara rosalegt stuð held ég og vonandi koma bara sem flestir,“ segir Jóel að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.