Vieira gerði fyrrum liði sínu skráveifu í baráttunni um Meistaradeildarsæti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. apríl 2022 21:05 Leikmenn Crystal Palace fagna þriðja marki sínu í leiknum. Rob Newell/Getty Images Lærisveinar Patrick Vieira í Crystal Palace gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Arsenal saman í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni, lokatölur 3-0. Vieira gerði garðinn frægan með Arsenal fyrr á þessari öld en stýrir í dag liði Palace. Lið hans er með það að markmiði að enda í efri hluta deildarinnar á meðan Arsenal er í harði baráttu um fjórða sæti deildarinnar. Arsenal þurfti allavega stig í kvöld til að komast upp fyrir nágranna sína og erkifjendur í Tottenham Hotspur en þegar öllu var á botninn hvolft áttu Skytturnar aldrei möguleika í kvöld. Jean-Philippe Mateta kom heimamönnum yfir á 16. mínútu með kraftmiklum skalla. Jordan Ayew kom Palace í 2-0 átta mínútum síðar með skoti sem fór í stöng og inn. Staðan 2-0 í hálfleik og gestirnir í mikilli brekku. Þegar rúmur stundarfjórðungur lifði leiks fengu heimamenn vítaspyrnu. Wilfried Zaha fór á punktinn og skoraði af öryggi, staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur leiksins. 4 Spurs (54 points, 30 games) 5 Arsenal (54 points, 29 games) The battle for fourth is turning into a north London affair pic.twitter.com/btn6etjh9E— B/R Football (@brfootball) April 4, 2022 Arsenal er því áfram í 5. sæti deildarinnar með 54 stig, líkt og Tottenham. Skytturnar eiga þó leik til góða. Palace fór með sigrinum upp í 9. sæti með 37 stig, líkt og Leicester City sem situr sæti neðar með lakari markatölu. Enski boltinn