Lífið

Stjörnulífið: Tenerife, Barbie og veisluhöld

Elísabet Hanna skrifar
Tenerife, allt sem er bleikt og almenn gleði hefur einkennt síðustu daga á samfélagsmiðlum.
Tenerife, allt sem er bleikt og almenn gleði hefur einkennt síðustu daga á samfélagsmiðlum. Samsett/Instagram

Bleikt Barbie afmæli, tónleikar um land allt og Tenerife, ásamt fleiri skemmtilegum viðburðum, tóku yfir samfélagsmiðlana síðustu daga. Hér er farið yfir það helsta af miðlum þekktra Íslendinga.

Söngkonan GDRN hélt tónleika í Hlégarði á laugardagskvöldið.

AK extreme fór fram um helgina þar sem Bríet kom meðal annars fram um kvöldið á tónleikum í Sjallanum.

Söngkonan Bríet fagnaði góðu gengi á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr í vikunni.

Dansarinn og fasteignasalinn Tara Sif hélt upp á þrítugsafmælið sitt með bleiku, glimmer Barbie þema.

Dansarinn Ástrós Traustadóttir skellti sér líka í glimmer gallann fyrir afmælið.

Hera og vinkonur hennar Svanhildur, María, Eydís og Guðrún voru í þema litum afmælisins hjá Töru Sif.

Hljómsveitin Kaleo var með fyrstu tónleikana sína í Miami en þeir eru á tónleikaferðalagi.

Árshátíð World Class var um helgina og klæddist Birgitta Líf, eigandi Bankastræti club og markaðsstjóri World Class, sambærilegum kjól og mamma hennar klæddist á sama viðburði fyrir þrjátíu árum.

Áhrifavaldurinn Guðrún Sørtveit deildi fréttum af fjölgun í fjölskyldunni með krúttlegri mynd af dóttur sinni. 

Söngvarinn Friðrik Ómar er staddur á Spáni og hann er ekki eini Íslendingurinn sem er þar.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra er spennt fyrir OOTD myndum í sumar.

Raunveruleikastjarnan Patrekur Jamie nýtur lífsins á Tene þar sem sólin virðist gleðja marga Íslendinga.

Eigandi Trendnet Elísabet Gunnars og handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson fóru á stefnumót. 

Söngkonan Birgitta Haukdal og Daniel Ágúst skelltu sér í diskó gallann fyrir UNICEF.

Áhrifavaldurinn Fanney Ingvars var ofurtöffari á sunnudaginn eins og alla aðra daga.

Skóhönnuðurinn Andrea Röfn pósar í Boston þar sem hún býr.

Crossfit stjarnan Björgvin K. Guðmundsson var með frábært apríl gabb, þar sem hann sagðist vera hættur í Crossit og tilkynnti að hann væri að taka við sem Íþróttaálfurinn.

Áhrifavaldurinn Sunneva Einars naut sunnudagsins vel.

Tónlistarmaðurinn Aron Can er spenntur fyrir tónleikunum sínum og æsir upp í hugmyndinni um nýtt efni.

Leik- og söngkonan Þuríður Blær veltir því fyrir sér hver þurfi á Ísland að halda og er aldrei að vita nema hún og allir hinir Íslendingarnir á Tenerife stofni Tenedætur.

Útvarpskonan og rapparinn Ragga Hólm er einnig í fríi og tekur sig vel út sem túristi.

Áhrifavaldurinn og vörumerkjastjórinn Erna Hrund slakar á með dóttur sína í fanginu, enda fátt betra.

Crossfit stjarnan Katrín Tanja á bestu klappstýruna, afa sinn. 

Fatahönnuðurinn og áhrifavaldurinn Camilla Rut fagnar góðu gengi fatalínunnar sinnar Camy collections.

Listakonan Kristín Avon og dóttir hennar nýta lyftuferðirnar vel í það að skapa minningar.

Þjálfarinn og dansarinn Sandra er að upplifa drauminn sinn í Los Angeles.

Fyrrum fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason hleypur um landið.

Leikkonan Aldís Amah átti góðan dag með fólkinu sínu til að hita upp fyrir afmælið sitt. 

Þáttastjórnandinn Marín Manda getur ekki hætt að hugsa um París þar sem hún var stödd fyrir stuttu síðan.

Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir tók alsæl á móti smá hita til Íslandi.

Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir og fótboltamaðurinn Hörður Magnússon taka Babymoon í Köben.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.