Lífið

Gústi B gengur til liðs við FM957: „Ég er að demba mér beint í djúpu laugina“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Rikki G er stoltur að fá Gústa B í útvarpið og segir hann yngsta útvarpsmann landsins.
Rikki G er stoltur að fá Gústa B í útvarpið og segir hann yngsta útvarpsmann landsins. Fm957

TikTok stjarnan Gústi B er nýjasti útvarpsmaður FM957. Hann hefur nú þegar hafið störf og verður í loftinu seinni partinn. Á fimmtudögum verður hann svo með sérstakan þátt frá 16 til 18. 

„Á dögunum tók ég þá ákvörðun að minnka við mig á TikTok en eftir hundrað daga af daglegum myndböndum var það klárlega eitthvað sem ég þurfti. Ég stefni samt á að leyfa TikTok aðdáendum að hafa áhrif á útvarpsþáttinn minn og mun kynna það fyrirkomulag síðar,“ segir Gústi B, fullu nafni Ágúst Beinteinn, í samtali við Lífið. 

„Ég er að demba mér beint í djúpu laugina og það er vissulega mikið sem ég þarf að læra á næstu vikum. Að verða allt í einu útvarpsmaður er meira en að segja það og næstu vikur fara í það að slípa mig til - þá er gott að hafa Rikka, Egil, Kristínu, Ósk og allt frábæra fólkið á FM mér innan handar.“

Þakklátur fyrir tækifærin

Gústi hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðustu mánuði og verið reglulegur gestur í útvarpsþáttum FM957. 

„Þó það sé mikil vinna fram undan þá er þetta auðvitað aðallega skemmtilegt. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir þessi tækifæri sem ég hef fengið og tek þeim ekki sem sjálfsögðum hlut. Ég hætti í Háskólanum til þess að geta elt draumana mína og þeir eru svo sannarlega að rætast núna. Núna fara flestir dagar hjá mér í að undirbúa hvað ég ætla að segja í útvarpinu, talsetja teiknimyndir og svo er ég plötusnúður á kvöldin. Mikil keyrsla en þannig líður mér best - ég gæti aldrei setið kyrr heima,“ segir Gústi. 

Yngsti útvarpsmaður landsins

„Við FM-fjölskyldan erum auðvitað í skýjunum yfir að hafa tryggt okkur starfskrafta Gústa B,“ segir Rikki G dagskrárstjóri FM957 um ráðninguna. 

„Hann sennilega einn sá þekktasti hjá unga fólkinu í TikTok heiminum og við erum auðvitað bara gríðarlega ánægð með að hann sé kominn til okkar. Hann er aðeins tvítugur að aldri sem gerir hann að yngsta útvarpsmanni landsins, á „prime“ tíma og á einni af stærstu stöðvunum sem er heldur betur afrek út af fyrir sig.“

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Gústa sem birtist í Ísland í dag fyrr á þessu ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.