Lífið

Billy Ray og Tish Cyrus sækja um skilnað í þriðja skiptið

Elísabet Hanna skrifar
Billy Ray Cyrus, Miley Cyrus og Tish Cyrus.
Billy Ray Cyrus, Miley Cyrus og Tish Cyrus. Getty/David Crotty

Foreldrar Miley Cyrus þau Billy Ray og Tish hafa sótt um skilnað eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Hjónin hafa tvisvar sinnum áður sótt um skilnað en ákveðið í framhaldinu að halda sambandinu áfram og gerðist það síðast árið 2013.

Tish sótti um skilnað frá Billy í Tennessee á miðvikudaginn. Ástæða skilnaðarins er skráð sem deilur sem ekki er hægt að komast að sameiginlegri ákvörðun um. Í skjölunum kemur einnig fram að parið hafi ekki búið saman síðustu tvö árin.

Billy Ray og Tish hafa  verið gift í tuttugu og átta ár.Getty/Michael Tran

Billy sem á kántrí slagarann Achy Breaky Heart og Tish giftu sig árið 1993 og eiga saman fimm börn. Upphaflega sótti Billy um skilnað árið 2010 en dró það svo til baka. Það var svo árið 2013 sem Tish sótti um skilnað en þau náðu að halda sambandinu áfram eftir að hafa unnið í því og þökkuðu sambandsráðgjöf fyrir að koma þeim í gegnum tímabilið.


Tengdar fréttir

Sjáðu Miley Cyrus taka kántríútgáfu af See You Again

Cyrus sem er dóttir kántrísöngvarans þekkta Billy Ray Cyrus er kannski ekki þekkt fyrir framlag sitt til kántrítónlistar en ljóst er að hún á ekki langt að sækja hæfileikana. Á dögunum tók hún upp kántríútgáfu af laginu See You Again og hefur fengið mikið lof fyrir flutninginn.

Foreldrarnir skilja

Leikkonan Miley Cyrus lýsir gremju sinni á Twitter

Pabbi Miley Cyrus óttast um stelpuna sína

Pabbi Miley Cyrus, köntríkempan Billy Ray Cyrus, segir að sjónvarpsþátturinn Hannah Montana, sem feðginin léku bæði í, hafi rústað fjölskyldunni. Hann segist óska að dóttirin hefði aldrei komið fram í þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.