Óskar Örn: Eigum að klára svona leik með sigri Hjörvar Ólafsson skrifar 19. apríl 2022 22:44 Óskar Örn Hauksson er kominn á blað með Stjörnumönnnum í Bestu-deildinnni í fótbolta karla en hann skoraði seinna mark liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Skagamönnum í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld.
Óskar Örn Hauksson er kominn á blað með Stjörnumönnnum í Bestu-deildinnni í fótbolta karla en hann skoraði seinna mark liðsins þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Skagamönnum í fyrstu umferð deildarinnar í kvöld. Óskar Örn var hins vegar meira umhugað um svekkelsið að fara ekki með sigur af hólmi en markið sem hann skoraði eftir leikinn. Honum fannst spilamennska Stjörnuliðsins hafa verðskuldað meira en eitt stig. „Eftir að hafa komist yfir þá eigum við að ná að sigla þessu heim. Þetta spilaðist svolítið upp í hendurnar á þeim í fyrri hálfleik. Við vorum meira með boltann og vorum að skapa fleiri færi en skyndisókn hjá þeim kemur þeim yfir. Þá geta þeir lagst niður á völlinn og varist aftarlega," sagði Óskar Örn Hauksson eftir fyrsta deildarleik sinn með Stjörnunni. Eins og Óskari Erni er von og vísa var mark hans einkar snoturt en hann lýsti því á eftirfarandi hátt: „Ég náði að skrúfa boltann framhjá varnarmanninum og ég sá eiginlega ekkert fyrr en að menn fóru bara að fagna. Þá vissi ég að boltinn hefði endað í markinu." „Tilfinningin að spila hérna í Garðabænum var vissulega öðruvísi en hún var bara góð. Það er líka bara gott að vera kominn út á völlinn eftir langan og þungan vetur. Spilamennskan í þessum leik var góð þrátt fyrir að niðurstaðan sé vonbrigði. Við náðum góðum sóknum og getum byggt á þessu," sagði þessi margreyndi leikmaður sem spilaði inni á miðjunni í þessum leik. Óskar Örn var að hefja sitt 19. keppnistímabil í efstu deild í kvöld og markið sem hann skoraði var það 86. í leik númer 349.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira