Lífið

Stjörnulífið: Coachella, tónleikar og trúlofun

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga. Samsett

Gleðin hefur svo sannarlega verið við völd hjá landsmönnum undanfarna daga og margir á faraldsfæti, hvort sem er innanlands eða í sól og blíðu erlendis.

Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður er mikill fótboltaáhugamaður og skellti sér á leik Arsenal og Manchester United í London á laugardaginn með vinum sínum úr Hæstarétti, dómurunum Karli Axelssyni og Bendikt Bogasyni, forseta réttarins.

Reykjavikurdætur héldu sturlaða tónleika á Akureyri og Siglufirði.

Kvikmyndin Berdreymi var frumsýnd við hátíðlega viðhöfn.

Birgitta Haukdal kom fram á aldamótatónleikunum og er nú byrjuð að telja niður í Írafárstónleikana í maí.

Binni Glee skellti sér til London og Patrekur Jaime sást á Petersen svítunni.

Sandra Helga fór á Coachella um helgina, seinni tónleikahelgi hátíðarinnar.

Guðrún birti fyrstu bumbumyndina af þessari meðgöngu. 

Listakonan Rakel Tómasdóttir opnaði sýninguna Hillingar í Núllinu.

GDRN heldur áfram að blómstra á meðgöngunni. Söngkonan spókaði sig um í nýja miðbænum á Selfossi um helgina.

Förðunarsnillingurinn Embla Wigum gerði Brigderton förðun um helgina. 

Birgitta Líf og Enok nutu veðurblíðunnar á Akureyri saman um helgina. 

„Life is good,“ skrifaði hún einfaldlega við myndina. 

Bassi Maraj æfði sig fyrir foreldrahlutverkið. 

Leikkonan og söngkonan Þórdís Björk hélt upp á afmælið sitt í vikunni.

Ástrós Trausta passaði vel inn í umhverfið í förðunarskólanum Reykjavík Makeup School. 

Klara Elías, gestur vikunnar í Einkalífinu, birti sæta paramynd.

Bríet er komin heim eftir vel heppnaða tónleika í Bandaríkjunum.

FM957 hélt vel heppnað eldhúspartý á fimmtudag. Hulda Margrét ljósmyndari okkar var auðvitað á staðnum.

Elísabet Gunnars er þakklát fyrir góða veðrið.

Kristjana Arnars og Haraldur Franklin eru trúlofuð, þau eiga von á sínu fyrsta barni.

Sunneva Einars hefur það gott á Ítalíu. 

Tískuskvísan og hársnillingurinn Theodóra Mjöll var flott í neongrænu í miðbænum.

Erna Hrund tilkynnti að dóttirin hefur fengið nafnið Lotta Lena. 

Friðrik Ómar er kominn í Eurovsion gírinn enda aðeins nokkrir dagar í þessa veislu.

Einar Ágúst birti skemmtilega mynd frá aldarmótatónleikunum.

Hljómsveitin Valdimar hélt vel heppnaða tónleika eftir langa bið. Hægt er að sjá brot frá tónleikunum í hringiðju þeirra á Instagram í augnablikinu.


Tengdar fréttir

„Var eiginlega viss um að ég ætlaði ekkert að syngja aftur“

„Ég var roslega ung þegar ég byrjaði að syngja opinberlega. Ég var tólf eða ellefu ára þegar ég söng í söngleik sem Baltasar Kormákur setti upp í Loftkastalanum, þetta var barnasýning sem hét Bugsy Malone,“ segir Klara Elíasdóttir söngkona og lagahöfundur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.