Áfall fyrir Þrótt: Linda Líf ekkert með og Ólöf Sigríður frá meirihluta tímabils Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. apríl 2022 19:31 Ólöf Sigríður í leik með Þrótti Reykjavík. Vísir/Hulda Margrét Þróttur Reykjavík verður án tveggja sterkra leikmanna framan af sumri í Bestu deildinni í fótbolta. Linda Líf Boama verður ekkert með liðinu og þá er Ólöf Sigríður Kristinsdóttir frá næstu þrjá mánuðina eða svo. Þetta staðfesti Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, í samtali við Fótbolta.net. Þar segir hann að Linda Líf geti ekki spilað vegna höfuðáverka sem hún varð fyrir í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Þar spilar hún með Boston College. Ólöf Sigríður og Linda Líf (til hægri) í leik með Þrótti á síðustu leiktíð.Vísir/Hulda Margrét Eftir að raða inn mörkum fyrir Þrótt í næstefstu deild sumarið 2019 þá hefur Linda Líf ekki náð neinu flugi með Þrótti í efstu deild. Hún náði alls að spila níu af 18 deildarleikjum liðsins á síðustu leiktíð. Skoraði hún í þeim þrjú mörk. Ólöf Sigríður var gríðarlega mikilvæg liði Þróttar í fyrra en hún skoraði átta mörk í 15 deildarleikjum. Hún meiddist í U-19 ára landsleik fyrr í þessum mánuði og er ljóst að hún mun ekki spila með Þrótti fyrr en eftir að Evrópumótinu í Englandi lýkur þann 31. júlí næstkomandi. Þrótti Reykjavík er spáð 5. sæti í spá Vísis og Stöðvar 2 fyrir tímabilið. Sem stendur er alls óvíst hvaðan mörkin eiga að koma í Laugardalnum. Liðið byrjar á eins erfiðum leik og mögulegt er, gegn Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda. Besta deild kvenna hefst annað kvöld, þriðjudaginn 26. apríl. Leikur Vals og Þróttar R. verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Fótbolti Íslenski boltinn Þróttur Reykjavík Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Sjá meira
Þetta staðfesti Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, í samtali við Fótbolta.net. Þar segir hann að Linda Líf geti ekki spilað vegna höfuðáverka sem hún varð fyrir í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Þar spilar hún með Boston College. Ólöf Sigríður og Linda Líf (til hægri) í leik með Þrótti á síðustu leiktíð.Vísir/Hulda Margrét Eftir að raða inn mörkum fyrir Þrótt í næstefstu deild sumarið 2019 þá hefur Linda Líf ekki náð neinu flugi með Þrótti í efstu deild. Hún náði alls að spila níu af 18 deildarleikjum liðsins á síðustu leiktíð. Skoraði hún í þeim þrjú mörk. Ólöf Sigríður var gríðarlega mikilvæg liði Þróttar í fyrra en hún skoraði átta mörk í 15 deildarleikjum. Hún meiddist í U-19 ára landsleik fyrr í þessum mánuði og er ljóst að hún mun ekki spila með Þrótti fyrr en eftir að Evrópumótinu í Englandi lýkur þann 31. júlí næstkomandi. Þrótti Reykjavík er spáð 5. sæti í spá Vísis og Stöðvar 2 fyrir tímabilið. Sem stendur er alls óvíst hvaðan mörkin eiga að koma í Laugardalnum. Liðið byrjar á eins erfiðum leik og mögulegt er, gegn Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda. Besta deild kvenna hefst annað kvöld, þriðjudaginn 26. apríl. Leikur Vals og Þróttar R. verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Þróttur Reykjavík Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Sjá meira