Njarðvíkingar geta lyft Íslandsbikarnum í Ljónagryfjunni í fyrsta skipti í 31 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. apríl 2022 13:00 Nýliðarnir úr NJarðvík eru aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. Vísir/Bára Dröfn Njarðvíkingar tryggðu sér síðast Íslandsmeistaratitilinn í Ljónagryjfunni árið 1991 en geta endað þá bið í kvöld.
Karla- og kvennalið Njarðvíkur hafa tryggt sér síðustu sjö Íslandsmeistaratitla á útivelli. Í kvöld getur orðið breyting á því þegar Njarðvíkurkonur taka á móti Haukum í fjórða leiknum í úrslitaeinvígi Subway deildar kvenna. Njarðvíkurkonur hafa unnið tvo af fyrstu þremur leikjum lokaúrslitanna og þriðji sigurinn færir liðið annan Íslandsmeistaratitil kvennaliðs félagsins frá upphafi. Njarðvík hefur reyndar unnið báða leiki sína á Ásvöllum, heimavelli Hauka í Hafnarfirði, og á því enn eftir að vinna heimasigur í úrslitaeinvíginu. Njarðvíkurkonur unnu einnig síðasta Íslandsmeistaratitil félagsins en sá kom í hús á Ásvöllum. Njarðvík fékk þá tækifæri til að tryggja sér titilinn í Ljónagryfjunni en tapaði leik þrjú. Þær bættu fyrir það með því að vinna fjórða leikinn örugglega í Hafnarfirðinum. Karlaliðið varð síðast Íslandsmeistari vorið 2006 en sá titill kom í hús í Borgarnesi. Karlaliðið tryggði sér einnig Íslandsmeistaratitlana 2002, 2001, 1998, 1995 og 1994 á útivelli. Það þarf að fara alla leið aftur til 11. apríl 1991 til að finna Íslandsmeistaratitil Njarðvíkur sem kom í hús í Ljónagryfjunni. Konurnar geta endað þá bið í kvöld en leikurinn við Hauka hefst klukkan 19.15 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Upphitun Subway Körfuboltakvölds kvenna hefst klukkan 18.45.
Subway-deild kvenna UMF Njarðvík Haukar Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Sjá meira