Lífið

Olivia Wilde fékk stefnu frá barnsföður sínum Jason Sudeikis uppi á sviði

Elísabet Hanna skrifar
Olivia Wilde var stödd á sviðinu þegar kona kom og rétti henni umslagið með stefnunni.
Olivia Wilde var stödd á sviðinu þegar kona kom og rétti henni umslagið með stefnunni. Getty/Greg Doherty

Lögmaður Jason Sudeikis stefndi fyrrverandi unnustu hans og barnsmóður Oliviu Wilde þar sem hún stóð uppi á sviði á CinemaCon. Olivia var stödd í Las Vegas til þess að kynna nýju myndina sína Don't Worry Darling sem hún leikstýrir.

Óvænt sambandsslit og Harry Styles

Harry Styles og Florence Pugh leika í aðalhlutverkum myndarinnar. Á meðan á tökum stóð tóku Olivia og Harry Styles saman og eru par í dag. Olivia og Jason slitu sjö ára trúlofun sinni og níu ára sambandi sínu í lok 2020 þegar tökur á myndinni voru í gangi og í byrjun janúar sáust Olivia og Harry fyrst opinberlega saman að leiðast í brúðkaupi. Jason hefur komið fram í viðtölum þar sem hann segir sambandsslitin hafa komið sér að óvörum.

Stóð á sviðinu fyrir framan alla

Þar sem Olivia stóð á sviðinu að kynna myndina sína gekk kona að sviðinu og renndi til hennar umslagi sem var merkt „persónulegt og trúnaðarupplýsingar“. Olivia ákvað að opna það á sviðinu eftir að hafa sagt við áhorfendurna að þetta væri mjög dularfullt og hún héldi að um einhverskonar handrit væri að ræða. 

Hún opnaði því umslagið þar sem hún stóð fyrir framan alla og sagði svo í kjölfarið „Allt í góðu, náði þessu, takk fyrir“. Næst lokaði hún svo umslaginu og hélt áfram með kynninguna og voru áhorfendur eitt stórt spurningamerki samkvæmt þeim sem voru í salnum. 

Harry Styles og Olivia Wilde eru par í dag.Getty/Neil Mockford

Jason ekki ábyrgur fyrir aðstæðunum

Olivia og Jason eiga saman tvö börn, þau Daisy og Otis sem eru fimm og átta ára gömul. Samkvæmt People hefur heimild náin fyrrum parinu staðfest að um pappíra tengdum lagadeilum í tengslum við forræði barnanna hafi verið að ræða. Heimildin segir einnig að Jason hafi ekki vitað af því hvaða staður og stund yrði fyrir valinu til þess að afhenda henni pappírana og segir að hann hefði ekki samþykkt að hafa þennan hátt á. 

Olivia Wilde og Jason Sudeikis eiga tvö börn saman.Getty/David Crotty

Í kjölfar atviksins hafa aðstandendur CinemaCon stigið fram og sagt að öryggisgæsla verði endurskoðuð eftir að ókunnug manneskja gat nálgast viðið á þennan hátt.


Tengdar fréttir

Harry Sty­les og Olivia Wild­e rugla saman reytum

Tónlistarmaðurinn Harry Styles og leikkonan Olivia Wilde eru sögð nýjasta parið í Hollywood en þau mættu saman í brúðkaup um helgina þar sem þau sáust haldast í hendur.

Hættu saman eftir átta ára samband

Leikaraparið Olivia Wilde og Jason Sudeikis slitu samvistir fyrr á árinu eftir átta ára samband. Parið byrjaði saman árið 2011, trúlofaði sig ári seinna og eiga þau tvö börn saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.