Þetta sagði Jón Dagur í stuttu viðtali við danska miðilinn Bold.dk í dag, en leikmaðurinn hafði verið úti í kuldanum hjá félaginu síðan í byrjun mars. Yfirmenn hans hjá AGF höfðu frekar viljað veðja á unga leikmenn liðsins, en eftir slæmt gengi var Jón Dagur kallaður aftur inn í byrjunarliðið.
Þrátt fyrir 1-0 tap AGF gegn OB í dag gat Jón dagur þó grínast með stöðuna.
„Þetta er ekki það versta sem getur komið fyrir mann,“ sagði Jón Dagur í samtali við Bold.dk.
„Ég fékk tíma til að spila smá golf sem var fínt. Mig skortir stundum einbeitingu, en maður getur æft það á golfvellinum.“
„En auðvitað hefur þetta verið erfiður tími á meðan ég hef verið fyrir utan liðið,“ sagði Jón Dagur einnig.
Jón Dagur segir að Stig Inge Bjørnebye, yfirmaður íþróttamála hjá AGF, hafi hringt í sig og tilkynnt honum að hann gæti farið að spila aftur fyrir AGF.
„Mér var bara sagt að ég ætti að spila daginn eftir að liðið tapaði 2-1 á móti OB. Við áttum stutt samtal þar sem hann sagði mér að ég ætti að spila.“
Þá fer Jón Dagur ekkert í felur með það að hann sé ósáttur við það hvernig félagið fór að í þessum málum, en segir þó að það séu engin leiðindi á milli hans og félagsins.
„Auðvitað er ég ekki ánægður með það hvernig farið var að í þessu máli. Þetta kom virkilega aftan að mér.“
„Félagið gerði mistök og þeir eru búnir að biðjast afsökunar. Þannig að nú er bara að halda áfram og það er enginn í fýlu yfir þessu,“ sagði Jón Dagur að lokum.