Við sem höfum farið á tískusýningu hjá Hildi Yeoman vitum að það er varla hægt að ganga frá sýningu og vera ekki brosandi. Helst poppa eina kampavínsflösku og enda dansandi einhversstaðar í glimmergleði.
Það einkennir svolítið Hildi og hennar hugarheim og hvernig hún velur að kynna hönnun sína.
Við ákváðum að taka stöðunni á henni á sólríkum sýningardegi.

Hvað eigum við von á að sjá á sýningunni þinni á HönnunarMars 2022?
Það verður fullt af gleði og stuði, enda tvö frekar þrotuð ár að baki hjá flestum og tími til þess að hafa gaman.
Þú hefur alltaf lagt áherslu á upplifun og gleði í sýningunum þínum, er einhver sérstök hugsun á bakvið það?
Mér finnst bara mjög gaman að hafa gaman! Við erum að prufa smá nýja nálgun á sýningunni í dag, ég er spennt að sjá hvernig það mun heppnast.
En ég lofa að þig mun langa að dansa á einhverjum tímapunkti.
Hvaða innblástur var ríkjandi í þessari nýju línu?
Fyrir okkur er þetta sumar nýtt upphaf. Þetta er mikil partýlína og við erum mjög innblásnar af kúnnunum okkar og hvað þeir verða að gera í sumar.
Við sáum fyrir okkur mismunandi sumarævintýri, villt sumarpartý, ferðalög til fjarlægra landa hvort sem það er á festivöl eða á heitar strendur. Svo öll ævintýrin sem bjartar nætur bjóða uppá á Íslandi.
Þetta er litríkt og glaðlegt, það er mikið af fallegum glitrandi kjólum og skvísu settum. Svo er að koma lína af nýjum sundbolum.
Það er eitthvað fyrir konur af öllum stærðum og gerðum. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur hjá Hildi Yeoman.

Hvenær eiga neytendur von á að geta nælt sér í flíkur úr þessari línu?
Línan er komin í Yeoman á Laugavegi 7 og á einnig á netverslun okkar.
Eitthvað að lokum?
Við mælum með að mæta tímanlega í kvöld, sýningin hefst klukkan 20 í höfuðstöðinni og við viljum að fólk gangi beint inn í upplifunina.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Sýningin hennar In Bloom mun vakna til lífsins í kvöld í Höfuðstöðinni á Rafstöðvarvegi kl. 20:00.
HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar.
Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022.