Luis Diaz gæti unnið sex titla á tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2022 12:01 Luiz Diaz í leik með Liverpool. vísir/ap Þetta gæti orðið einstakt tímabil fyrir Liverpool-manninn Luis Diaz en svo gæti farið að hann vinni sex stóra titla á tímabilinu.
Liverpool á enn möguleika á því að vinna fernuna en Luis Diaz var líka allt í öllu hjá Porto í Portúgal áður en Liverpool keypti hann í janúar. Liverpool ace Luis Diaz could collect six medals this season if Reds win quadruplehttps://t.co/m6Okq0TSjU pic.twitter.com/GnwHNHS2cg— Mirror Football (@MirrorFootball) May 5, 2022 Liverpool er sex leikjum frá því að klára sögulega fernu, er reyndar einu stigi á eftir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni en er komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á móti Real Madrid og í úrslitaleik bikarkeppninnar á móti Chelsea. Porto er líka á góðri leið með að tryggja sér portúgalska meistaratitilinn en Diaz var með 14 mörk og 5 stoðsendingar í átján deildarleikjum áður en hann var seldur. Diaz spilaði einnig þrjá leiki í portúgalska bikarnum þar sem Porto er komið í úrslitaleik sem verður á móti Tondela 22. maí næstkomandi. Diaz hefur komið frábærlega inn í lið Liverpool og smellpassar í leikstíl Jürgen Klopp. Diaz átti meðal annars mikinn þátt í því að Liverpool kom til baka á móti Villarreal eftir að liðið lenti 2-0 undir í hálfleik. Diaz kom inn í hálfleik, skoraði og gerbreytti leiknum.
Enski boltinn Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira