Chelsea glutraði niður tveggja marka forystu á heimavelli Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. maí 2022 16:00 Fyrstu mörk Lukaku í ár. vísir/Getty Óvæntur markaskorari kom Chelsea í kjörstöðu gegn Wolverhampton Wanderers á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni en það dugði ekki til sigurs. Belgíski framherjinn Romelu Lukaku hefur ekki látið mikið til sín taka með Chelsea á tímabilinu en hann fékk tækifærið í sóknarlínu liðsins í dag. Fyrri hálfleikur var markalaus en fljótlega í síðari hálfleik fór að draga til tíðinda. Lukaku kom heimamönnum í forystu með marki úr vítaspyrnu á 56.mínútu og aðeins örfáum sekúndum síðar tvöfaldaði hann forystuna. Fyrstu deildarmörk kappans á þessu ári. Úlfarnir, sem voru án stjóra síns, Bruno Lage, gáfust ekki upp og náðu að kreista út eitt stig með tveimur mörkum á lokakaflanum. Trincao minnkaði muninn á 80.mínútu og þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Conor Coady metin fyrir Úlfana. Nokkrum sekúndum síðar var flautað til leiksloka og lokatölur 2-2. Enski boltinn