Innlent

Sam­fylking á siglingu í Hafnar­firði og meiri­hlutinn fallinn

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna.
Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, og Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna. Vísir/Vilhelm

Meirihlutinn í Hafnarfirði, sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda, er fallinn, ef marka má nýja könnun sem Prósent gerir fyrir Fréttablaðið.

Könnun blaðsins sýnir Samfylkinguna í stórsókn í bænum með 31 prósents fylgi og fjóra bæjarfulltrúa en flokkurinn fékk 20 prósent og tvo fulltrúa í síðustu kosningum. 

Vert er þó að benda á að aðeins um 340 einstaklingar taka þátt í könuninni, sem var netkönnun. 

Samkvæmt henni heldur Sjálfstæðisflokkurinn stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í bænum en missir þó einn fulltrúa. Framsókn er þá í þriðja sæti og bætir sig um eitt prósent frá kosningum og þá koma Píratar og Viðreisn manni að, en Píratar hafa engan í dag en Viðreisn einn. 

Þrjú framboð mælast síðan ekki inni, Bæjarlistinn, Miðflokkurinn og Vinstri græn, en tvö þeirra fyrrnefndu hafa fulltrúa í dag í bæjarstjórn.

Oddvitar framboða í Hafnarfirði mættust í kappræðum á Vísi í gær, og má sjá þær í spilaranum að neðan. 


Tengdar fréttir

Tekist á um forystuna í Hafnarfirði í kappræðum á Vísi

Hafnfirðingar ganga að kjörborðinu eftir fjóra daga og ákveða hverjir skuli fara með stjórn bæjarins á næstu fjórum árum. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær oddvita framboða í bænum í kappræður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×