Erlent

Stórfellt svindl með ávexti og grænmeti

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Frá matarmarkaði í Cartagena.
Frá matarmarkaði í Cartagena. Vísir/Jóhann Hlíðar

Fleiri tonnum af ávöxtum og grænmeti er smyglað ár hvert til Spánar frá ríkjum Norður-Afríku og þau síðan seld sem spænskar afurðir. Ríkisstjórnin ætlar að skera upp herör gegn þessu umfangsmikla svindli.

Spánn er langstærsti framleiðandi ávaxta og grænmetis í Evrópu. Ríki Evrópusambandsins rækta tæp 100 milljónir tonna af ávöxtum og grænmeti á ári hverju og fjórðungur þess kemur frá Spáni.

Það kann því að koma mörgum á óvart að í þeirri miklu matarkistu sem Andalúsía á Suður-Spáni er, viðgengst stórfellt svindl með ávexti og grænmeti.

Grænmeti frá Norður-Afríku blandað við það spænska

Fleiri tonn af tómötum, appelsínum, paprikum eru flutt inn til Spánar í skjóli nætur frá Marrokkó, Egyptalandi og Tyrklandi. Afurðirnar eru teknar úr upprunapakkningunum og síðan merktar á ný sem spænsk framleiðsla eða þeim er hreinlega blandað saman við spænska framleiðslu.

Svindlið hleypur á milljónum evra og nú hefur spænska þingið ákveðið að grípa í taumana. Ríkisstjórn sósíaldemókrata hyggst veita sjálfsstjórnarhéruðunum auknar valdheimildir til að spyrna við þessum vörusvikum. Það er mikið í húfi, bæði innanlandsframleiðsla og það sem er ekki síður mikilvægt, hið góða orðspor sem fer af spænskum ávöxtum og grænmeti. Í hinum innfluttu matvælum finnast oft leifar af áburði og öðrum efnum sem eru bönnuð innan Evrópusambandsins.

Matarmarkaðurinn í Cartagena.Vísir/Jóhann Hlíðar

Sex sinnum ódýrara að rækta grænmeti í Norður-Afríku

Hvati bændanna er hins vegar mikill þegar kemur að peningum. Sem dæmi má nefna að það kostar andvirði 8 íslenskra króna að framleiða kíló af tómötum í Marokkó, en á Spáni kostar það um 50 krónur. Samkeppnin er því erfið og grjóthörð. Á síðustu tveimur árum hafa eftirlitsmenn framkvæmt 838 stikkprufur og sektað þá sem hafa orðið uppvísir að svindli um alls 448.000 evrur, andvirði 63 milljóna íslenskra króna. En hvernig áttu að geta haldið uppi skilvirku eftirliti með nokkrum eftirlitsmönnum þegar þúsundir vöruflutningabíla aka landshorna á milli á hverri einustu nóttu?

Talsmaður ávaxta- og grænmetisbænda, Andrés Góngora, segir í samtali við spænska dagblaðið El País, að menn leggi ekki einu sinni mikið á sig til að fela svindlið. Á hverjum einasta degi megi sjá þúsundir pakkninga frá ríkjum Norður-Afríku á sorphirðustöðum í Andalúsíu. Og annar talsmaður ræktenda segir í samtali við sama blað, að viðurlögin séu svo væg, að þó þú sért staðinn að verki, þá borgar sig að greiða sektina og halda áfram að svindla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×