Mykjukenningin / Gaurar á vespum að gera allt vitlaust í hverfunum! Davíð Bergmann skrifar 19. maí 2022 07:30 Staðreyndin er þessi það eru ekki allir í boltanum. En hvað með að opna aftur Mótorsmiðjur gæti það verið lausn? Kannski koma þessi skrif of seint þar sem kosningar eru ný afstaðnar og þá hefði verið upplagt að koma með þetta í umræðuna því allir stjórnmálaflokkarnir ætluð að „gera allt fyrir börnin okkar“ í kosningunum munið þið. Þegar þessir gaurar og líka auðvitað stelpur sem ég reikna með að séu í minnihluta setja facebook-síður hverfanna á hvolf með skrifum að þau séu að halda vöku fyrir börnunum og með glæfra akstri á göngustígunum sem hljómar stundum eins og þetta væri villta vestrið af lýsingum að dæma, þá er ekki hjá því komist að það verður að nálgast þetta viðfangsefni á þeirra forsendum ef það á að takast vel til eins og við gerðum í gamla daga í Mótorsmiðjunni upp á Höfða og í Útideildinni. Það er enn þá þannig að líkur sækir líkan heim og við viljum öll tilheyra með einhverjum hætti það hefur ekki breyst í mannlegri hegðun. Þarna er vettvangur til að sá fræjum með því að koma fræðslu á framfæri varðandi hjálma notkun og fleira. Mótorsmiðjan sem ég vann í hérna um árið var akkúrat þannig. Að gera ekkert nema tuða yfir ástandinu muni ekki leysa vandamálið og það hverfur ekki að sjálfum sér. Það þarf að tækla svona lausnarmiðað og reyna stýra þessu í jákvæðan farveg. Samt þannig að fræðslan sé ómeðvituð svo þau upplifi ekki að það sé verið að anda ofan í hálsmálið á þeim. Einfaldlega heyra þau og sjá og mæta þeirra þörfum. Það er ekki nóg að vera með miðstöðvar fyrir bolta því það eru ekki allir í boltanum. Þegar ég vann í Útideildinni sem var rekinn af unglingadeild félagsmálastofnunar Reykjavíkur kynntist ég stórkostlegum manni sem heitir Björn Ingi Ragnarsson. Hann var upphafsmaður af fyrstu Mótorsmiðjunni seinna kom Mummi að henni og útfærði hana en frekar. Þegar ég spurði Bjössa hvernig smiðjan varð til kom hann með stórkostlega sögu. Það var þannig eins og núna þessir gaurar voru að gera fólk vitlaust í hverfunum. Til að gera langa sögu stutta þá notaði hann mykjukenninguna. Sem er sú ef þú setur hrossaskít út á tún þá setjast bara ákveðnar flugur á hann en ekki allar. Það sem hann gerði hann keyrði á mótorhjólinu sínu í leðrinu sat á hjólinu í hverfinu þar sem þessir pjakkar voru og viti menn flugurnar komu og mótorsmiðjan var stofnuð. Ætla mér að segja frá þessari stórkostlegu sögu nánar þegar bókin mín kemur út „bókin er minn óvinur“ Eins og þessir gaurar eiga margir hverjir bókina sem sinn stærsta óvin í lífinu. En samt troðum henni ofan í kok á þeim setjum þá í kassa menntakerfisins sem þeir passa enga veginn inn í en þeir eru sumir snillingar í höndunum þarna myndi mótorsmiðja koma sterk inn til að styrkja þeirra sjálfsmynd til framtíðar. Höfundur er starfsmaður Fjölsmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar