Lífið

Kourtney og Travis gift: Dolce & Gabbana styrktaraðili þriðja brúðkaupsins á Ítalíu

Elísabet Hanna skrifar
Kourtney og Travis virðast vera ástfangin upp fyrir haus.
Kourtney og Travis virðast vera ástfangin upp fyrir haus. Skjáskot/Instagram

Um helgina átti sér stað þriðja og síðasta brúðkaup Kourtney Kardashian og Travis Barker. Þema dagsins virðist hafa verið gothic-glam og klæddist Kourtney stuttum Dolce & Gabbana korselett kjól og voru dætur þeirra blómameyjar.

Dolce & Gabbana villa

Parið gifti sig endanlega í lítilli athöfn sem fór fram í Portofino, Ítalíu í gær. Þau giftu sig í L'Olivetta villunni sem er í eigu Dolce & Gabbana og fylgdi Kris Jenner, móðir Kourtney henni niður altarið. Brúðkaupsveislan var síðan haldin í sautjándu aldar kastalanum, Castello Brown. Þar vangaði nýgifta parið, í herra og frú Barker jökkum í stíl og kysstist samkvæmt sjónarvottum.

Þetta er fyrsta hjónaband Kourtney en það þriðja hjá Travis en þau höfðu verið vinir í mörg ár áður en ástin tók völd.

Frá Íslandi til Ítalíu

Á föstudaginn kom fjölskyldan fyrst til Ítalíu og hefur verið dugleg að njóta á bátum, í kvöldverðum og að spóka sig um. Samkvæmt sjónarvottum hófst athöfnin á því að Andrea Bocelli söng „I Found My Love in Portofino“ en hann var með tónleika kvöldið áður hér á Íslandi í Kórnum.

La Dolce Vita

Samkvæmt Daily Mail var tískuhús Dolce & Gabbana styrktaraðili brúðkaupsins og sá meðal annars um að klæða og ferja fjölskylduna yfir helgina. Samningurinn er risastór auglýsing fyrir tíksuhúsið sem metin er á milljónir punda. Dolce & Gabbana hefur verið umdeilt síðustu ár vegna auglýsinga og ummæla sem það hefur látið frá sér.

Yfir helgina mátti því sjá fjölskyldumeðlimina í klæðnaði frá merkinu og klæddust sum þeirra vintage flíkum. Einnig voru bátar og aðrir staðir sem þau voru stödd á innréttað frá merkinu líkt og sjá má hér að neðan.

Slörið

Á slörinu sem Kourtney bar mátti sjá andlit Maríu mey sem Travis er einnig með húðflúrað á hausinn á sér ásamt orðunum „fjölskylda tryggð virðing“ sem voru líka saumuð í slörið. Hönnunin á kjólnum og slörinu hefur því tilfinningalegt gildi fyrir brúðhjónin.

Þriðja brúðkaupið á stuttum tíma

Nokkrum dögum áður eða þann 15. maí giftu þau sig formlega í dómshúsinu áður en þau fóru til Ítalíu og héldu athöfnina. Þar áður, í byrjun mars, giftu þau sig án lagalegra skjala í Las Vegas. Það má því segja að þetta hafi verið þriðja og líklega síðasta brúðkaupið þeirra. 

Vantaði nokkra

Þó að vinir og ættingjar hafi mætt til þess að fagna með þeim vantaði nokkra. Pete Davidson, kærasti Kim Kardashian, var staddur í New York þar sem hann var að taka upp loka þáttinn sinn af SNL þar sem hann var að hætta eftir átta ár í starfinu. Einnig sáust Rob Kardashian, Travis Scott og Caitlyn Jenner ekki á svæðinu. 

Scott Disick var heldur ekki á Ítalíu en samkvæmt heimildum var honum boðið með því skilyrði að það yrði ekki óþægilegt. Hann ákvað að halda sig frá viðburðinum. Líkt og sjá má í The Kardashians þáttunum hefur hann átt erfitt með samband Kourtney og Travis.

Stór fjölskylda

Úr fyrra sambandi, með Scott Disick, á Kourtney synina Mason og Reign sem eru tólf og sjö ára og dótturina Penelope sem er níu ára. Travis á soninn Landon og dótturina Alabama sem eru átján og sextán ára. Einnig er hann náinn Atiönu sem fyrrverandi eiginkona hans og barnsmóðir Moakler átti fyrir þeirra samband með boxaranum Oscar De La Hoya.

„Ég er mjög náin börnunum hans Travis og ég elska þau og þetta er fallegt,“

sagði Kourtney í þáttunum The Kardashians. Hún segir eina af ástæðum þess að hún varð ástfangin að honum vera hversu góður faðir hann er.

Hér að neðan má sjá myndir sem fjölskyldan, aðrir miðlar og Dolce & Gabbana, sem var styrktaraðili brúðkaupsins, deildi frá helginni á Ítalíu:


Tengdar fréttir

Kourtney Kardashian og Travis Barker giftu sig í alvörunni

Eftir að hafa tekið æfingarbrúðkaup í síðasta mánuði eru Kourtney Kardashian og Travis Barker, einnig þekkt undir paranafninus Kravis, búin að ganga í það heilaga. Í þetta skiptið er það í alvörunni, lagalega séð.

Gifti sig í Dolce & Gabbana kjól

Kourtney Kardashian hefur nú birt myndir frá því hún giftist Travis Barker aftur um helgina. Eins og við fjölluðum um í gær giftu þau sig löglega í Santa Barbara í lítilli athöfn í ráðhúsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.