Erlent

Snarari viðbrögð hefðu getað bjargað lífum barna

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Búið er að koma fyrir hvítum krossum á skólalóðinni með nöfnum þeirra sem létust í árásinni.
Búið er að koma fyrir hvítum krossum á skólalóðinni með nöfnum þeirra sem létust í árásinni. Kin Man Hui/The San Antonio Express-News via AP

Faðir tíu ára stúlku sem lést í skotárásinni í skóla í Uvalde í Texas í Bandaríkjunum í fyrradag segir lögreglu ekki hafa brugðist nógu hratt við. Snarari viðbrögð hefðu getað bjargað lífum barna.

Hvítum krossum hefur verið komið fyrir á skólalóðinni til minningar um börnin nítján og tvo kennarana sem létu lífið í árásinni. Eitt barnanna var hin tíu ára Jacklyn Cazares. Javier Cazares faðir hennar gagnrýnir lögreglu fyrir viðbrögð sín við árásinni.

„Ég held í alvöru að það hefði mátt koma í veg fyrir margt ef þeir hefðu verið undirbúnir.“

Þegar árásarmaðurinn mætti vopnaður tveimur rifflum að skólanum var lögregla strax kölluð til. Þeim fyrstu á vettvang tókst hins vegar ekki að koma veg fyrir að hann kæmist inn í skólann. Heldur náði hann að læsa sig inni í stofu með börnum og kennurum. 

Mikil reiði greip um sig meðal foreldra sem var ósátt við viðbrögð lögreglu en um fjörutíu mínútur liðu þar til hann var skotinn til bana. Foreldrar reyndu sumir að komast inn.

„Þeir segjast hafa flýtt sér inn en við sáum það ekki. Við vorum að minnsta kosti eina húsalengd héðan og við heyrðum skotin. Þeir reyndu bara að snúa við. Þeir sögðu okkur að leyfa þeim að vinna vinnuna sína. En vinnan þeirra er að fara inn og bjarga mannslífum, ekki bíða. Þeir segja að það hafi verið innan nokkurra mínútna og ég veit að ef þið hefðuð verið þarna vissuð þið að það liðu 35, 45 mínútur áður en... Og það er sannleikurinn, það er sá tími sem leið þangað til við sáum þá fara inn. Guð má vita hversu lengi litla stelpan mín og hin voru þar.“


Tengdar fréttir

For­eldrar reyndu sjálfir að bjarga börnum sínum

Árásarmaðurinn sem myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í fyrradag sendi skilaboð á Facebook um að hann ætlaði að fremja skotárás í grunnskóla um fimmtán mínútum áður en hann lét til skarar skríða. Lögreglan í Uvalde hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi.

Skaut ömmu sína, keyrði í skólann og lokaði börnin inni í stofu

Öryggisgæsla hefur verið hert í skólum víða í Bandaríkjunum eftir að ungur maður vopnaður rifflum myrti nítján börn og tvo kennara í grunnskóla í Texas í gær. Fjölmargir kalla eftir hertri skotvopnalöggjöf en árásin er sú mannskæðasta í skóla þar í landi í áratug.

Ólíklegt að skotárásin leiði til breytinga

Á meðan Repúblikanar geta tafið mál í bandaríska þinginu og komið í veg fyrir framgang þeirra eru ólíklegt að breytingar verði á skotvopnalöggjöf þar í landi að mati alþjóðastjórnmálafræðings. Skotárásin á barnaskóla í bænum Uvalde í suðurhluta Texas í gær hefur vakið hörð viðbrögð. Fjöldi fólks hefur kallað eftir strangari skotvopnalöggjöf í landinu.

Nítján börn og tveir fullorðnir létust í árásinni í Texas

Að minnsta kosti nítján börn og tveir fullorðnir eru látnir eftir skotárás 18 ára manns í grunnskóla í Texas. Árásarmaðurinn, Salvador Ramos, hóf fjöldamorðið á því að skjóta ömmu sína sem nú liggur alvarlega særð á spítala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×