Uppskriftina úr þættinum má sjá hér að neðan.
Humar
- 1 kg skelflettur humar
- 2 msk olía
- 2 msk smjör
- salt og pipar
- 2 hvítlauksrif
Pico de gallo
- 2 buff tómatar
- 1/2 rauðlaukur
- 1 stk habanero
- 1 msk olía
- salt og pipar
- 1/2 búnt kóríander
- safi úr einu súraldin (lime)
Lárperumauk
- 3 lárperur
- ¼ rauð paprika
- ¼ gul paprika
- 1/2 rauð paprika
- lime
- salt
Tacos
- 300 gr hveiti
- 1 tsk salt
- 2 msk olía
- 1/2 tsk lyftiduft
- 120 ml sódavatn
- Meðlæti:
- Sýrður rjómi
- Íssalat
- vorlaukur
- kóríander

Aðferð:
- Skerið tómata í teninga, saxið rauðlauk, kóríander og habanero. Blandið saman við olíu og lime safa og kryddið með salti og pipar.
- Blandið taco deig hægt í hrærivél þangað til allt er blandað vel saman. Kælið deigið í 30 mínútur. Takið deigið út og skerið í 8 hluta og fletjið út hluntana með kökukefli. Bakið hverja köku á þurri pönnu í 1 mín á hvorri hlið þangað til þær eru gullbrúnar. Setjið taco í viskastykki og leggið til hliðar til að halda þeim volgum.
- Afhýðið lárperur, skerið í sneiðar og blandið saman við saxaða papriku og lime safa.
- Steikið humar á háum hita í 3-4 mín á pönnu með olíu, kryddið með salti og pipar. Rétt áður en humar er klár skal setja smjörið og hvítlaukinn á pönnuna og slökkva undir.
- Pennslið taco með sýrðum rjóma, setjið íssalat í botninn og fyllið með humar, pico de gallo og lárperumauki. Saxið ferskt kóriander ofan á og vorlauk.
- Setjið saman og njótið.
Helvítis kokkurinn eru matreiðsluþættir sem koma út á Vísi og Stöð 2+ í sumar. Hægt er að fylgjast nánar með á Instagram.