Menning

„Hann kom að móðunni miklu, blotnaði í tærnar og sneri við“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ragnar Axelsson hefur skrásett heimsfaraldurinn hér á landi.
Ragnar Axelsson hefur skrásett heimsfaraldurinn hér á landi. RAX

Þó svo að Ragnar Axelsson héldi að heimsfaraldurinn myndi aðeins vara í þrjá mánuði, skynjaði hann í upphafi faraldursins að það væri mikilvægt að skrásetja þetta ástand með myndum.

RAX ferðaðist um mannlausa þjóðvegi, hitti fólk sem missti heilsu og ástvini, en myndaði líka sögur fólks sem lifði af og náði sér. Í lokaþætti þessarar þáttaraðar af RAX Augnablik segir ljósmyndarinn sögurnar á bak við nokkrar einstakar myndir frá faraldrinum

Þáttinn Sögur úr Covid má sjá á spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: RAX Augnablik - Sögur úr Covid

Í þáttunum RAX Augnablik segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+. 

Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.


Tengdar fréttir

„Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“

„Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi.

„Við förum bara þegar þú kemur næst“

Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.