Lífið

Stjörnulífið: Sólin, Stóra eplið og Sjómannadagurinn

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga.
Stjörnulífið er fastur liður á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga. Samsett mynd

Lífið og sólin leikur við blikandi stjörnulífið þessa dagana og eru samfélagsmiðlarnir  skreyttir blómum, ferðalögum og sólbrúnum kroppum.  

Það er óhætt að segja að það fari meira fyrir ferðalögum erlendis nú í sumar miðað við það síðasta en okkar fallega farsældar Frón á að sjálfsögðu sitt pláss á sumarfrísmyndum landans. 

Sumarið byrjar vel, ferðalögin og fríin eru framundan og það virðist vera einhver ævintýraljómi og spenna í loftinu.  

Eliza Reid forsetafrú birti myndir af þeim hjónum frá heimsókn þeirra til Ísafjarðar þar sem þau fóru meðal annars í skrúðgöngu og heilsuðu upp á elsta mann Íslands. 

Stóra eplið átti sviðið um helgina

New York var greinilega áfangastaður stjarnanna þessa helgina og virtist sólin og veðurblíðan ekkert vera að skemma fyrir. 

Birgitta Líf nýtti tækifærið og baðaði sig í sólinni við Mohonk vatn í New York. 

Vinkonurnar gripu sér auðvitað spaða í hönd og spiluðu tennis í sólinni í viðeigandi tennis-dressum. 

Sunneva á ekki í vandræðum með pósurnar og er glæsileg í hvítum kjól í sólsetrinu. 

Ástrós var einnig glæsileg í hvítu. 

Sipp og Hoj

Fimleikastjarnan Glódís bar sigur úr bítum í koddaslag BAHNS sem haldinn var á Sjómannadaginn í Reykjavíkurhöfn. 

Ljósa Loga, eiginkona Hjálmars Arnar, birti fallega mynd af fjölskyldunni sem naut sín vel á Sjómannadeginum. 

Hreimur Örn var greinilega vel nærður á Sjómannadagshátíðinni í Vestmannaeyjum um helgina. 

Bjarna Ben fannst sérdeilis upplagt að gæða sér á ís með dýfu hjá feðgunum á Kletti í Vestmannaeyjum.

Nýtt stúlknaband?

Birgitta Haukdal birti skemmtilega mynd af sér og vinkonum sínum þeim Ragnhildi Steinunni, Eddu Hermanns og Evu Laufey Kjaran. Undir myndina skrifar hún: 

 Mögulega nýtt girl power band?-  Gitta and the Blondies!

Það fer greinilega ekki mikið fyrir lofthræðslunni hjá Áslaugu Örnu sem birti mynd af sér hangandi af turninum CN Tower í Toronta. 

Hæðin? Jú, litlir 365 metrar voru það heillin. 

Það virðist sömuleiðis fátt hræða fjallagarpinn og ævintýramanninn Garp Elísabetarson sem birti myndband af sér í nokkurs konar línudansi við hinn ógurlega Dettifoss. 

Nafn fossins getur mögulega gefið vísbendingar um hvernig fór. 

Svala Björgvins birti mynd af sér og vinum sínum fyrir utan Sjáland í Garðabæ eftir gott gigg.  

Ljósmyndarinn og tískugyðjan Saga Sig var stödd í London á dögunum og birti ofursvala mynd af sér í grárri fallegri dragt. 

Heimildarmynd hljómsveitarinnar Of Monsters And Men var frumsýnd á Tribeca Film Festival þann 9. júní. Hér má sjá skemmtilega mynd hljómsveitarmeðlimum sem segjast þakklát fyrir þá sem komu að gerð myndarinnar.  

Æði fyrir ÆÐI

Raunveruleikastjarnan Patrekur Jamie segist þakklátur fyrir ævintýri síðustu mánaða en sería fjögur fór í loftið á Stöð 2 í síðustu viku. 

Jóhann Kristófer eða Joey Christ, leikstjóri ÆÐI var eitursvalur að vanda og splæsti í pósur á Hótel Rangá.  

Lundúnarborg fór förðunarfræðingnum Alexander Sig einstaklega vel.

Leikkonan Íris Tanja er eins og Hollywoodstjarna á svarthvítri portrait mynd sem ljósmyndarinn Dóra Dúna tók af henni.  

Móeiður birtir mynd af nýfæddri stúlku sinni og Harðar þar sem hún skrifar einfaldlega: 

Fullkomin!

Camilla Rut skálar og brosir út fyrir endimörk alheimsins á fallegri mynd sem hún birti um helgina. 

Söngvarinn Friðrik Ómar púar vindil á tyllidögum og segir reykingar drepa. 

Leikkonan Þórdís Björk mun leika Roxie í söngleiknum Chicago á næsta leikári. 

Bríet er þakklát fyrir tilnefningu til Grímunnar fyrir tónlistina í Rómeó og Júlíu. 

Flóni lifir þessu góða fimm stjörnu lífi. Það er nú bara þannig!

Sólin fer nöfnu sinni Sólborgu Guðbrandsdóttur einstaklega vel. 

Einkaþjálfarinn ógurlegi Gummi Emil segir lífið vera bíómynd og birtir rándýra mynd af sér og vinahópnum þar sem þeir njóta lífsins í Grikklandi. 

Brynja Dan er róhóhólegi kúrekinn í Hafnarfirði. 

Thelma Guðmunds pósar á fallegri sjálfu.

Egill Ploder ræðir um stóru málin við Reykjarvíkurhöfn. 

Marín Manda blómleg að vanda í fallegum kjól í blíðunni á Akureyri. 

Elísabet Gunnars segist ekki lengur geta hneppt partýgallanum en þriðja barnið vex og dafnar í bumbunni sem fer henni einkar vel. 

Söngvarinn Jógvan segist ekki fá nóg af því að ferðast og kynnast nýju fólki. 

Kristín Péturs með sumartískuna upp á tíu í fallegum kjól og uppháum stígvélum. 

Herra Hnetusmjör sultuslakur í bubblubaði. 


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Löng helgi, trúlofanir og allir að njóta

Helgin var löng og virðast flestir hafa gripið tækifærið til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Bubbi fagnaði afmælinu sínu, listamenn héldu tónleika, margir skelltu sér í hlaup, börnin völdu sitt uppáhalds fólk og Íslendingarnir voru líka duglegir að ferðast.

Stjörnulífið: Sólardagar, útskriftir og Írafár

Sólin gladdi Íslendinga um helgina en margir eru þó á faraldsfæti. Áhrifavaldaferð í spilavíti í Tallin, Írafárstónleikar, sólarmyndir og útskriftir tóku yfir samfélagsmiðlana síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.