Innlent

Grímur verður lög­reglu­stjóri á Suður­landi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Grímur er hann þjálfaði lið Selfoss.
Grímur er hann þjálfaði lið Selfoss. Vísir/Vilhelm

Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, verður settur lögreglustjóri á Suðurlandi frá 1. júlí næstkomandi og út árið. Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri verður í leyfi á sama tíma en Grímur mun áfram starfa sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum á tímabilinu.

Greint er frá þessu í Morgunblaðinu en Grímur hefur starfað sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum síðan árið 2020. Í samtali við Morgunblaðið segist hann ætla að verða mest áfram í Vestmannaeyjum, en einnig eftir atvikum á Suðurlandi.

„Staðsetning skiptir reyndar ekki sama máli nú og áður, því störf og verkefni eru oft afgreidd í tölvu og síma. Nokkrar vikur eru síðan fyrst var nefnt að ég bætti Suðurlandinu við mig í nokkra mánuði og þeirri beiðni ráðuneytisins svaraði ég játandi. Frá fyrri tíð þekki ég flest í starfsemi þess embættis og geng því að flestu vísu myndi ég ætla,“ segir Grímur.

Þjálfaði einnig í handbolta

Grímur var í þjálfarateymi ÍBV í Olís-deild karla í handbolta á síðustu leiktíð en líkt og Vísir greindi frá fyrr í mánuðinum verður hann ekki hluti af teyminu á næsta tímabili. Hann var heiðraður á lokahófi félagsins í síðustu viku en liðið komst alla leið í úrslitaeinvígið þar sem Eyjamenn töpuðu fyrir Valsmönnum.

Áður en hann fór til Eyja að sinna lögreglustörfum var hann aðalþjálfari Selfoss í Olís-deild karla og þekkir því Suðurlandið vel. Mestur þungi starfsemi embættis Lögreglustjórans á Suðurlandi er á Selfossi en höfuðstöðvarnar eru þó á Hvolsvelli.

Bróðir Gríms, Þórir Hergeirsson, er einnig handboltaþjálfari og hefur stýrt norska kvennalandsliðinu í handbolta í þrettán ár. Sem þjálfari liðsins hefur hann unnið fjóra Evrópumeistaratitla, þrjá heimsmeistaratitla og einu sinni orðið Ólympíumeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×