Íslendingaslagir í B-riðli og Magdeburg berst við PSG og Veszprém Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. júlí 2022 10:29 Ómar Ingi magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar þeirra í Magdeburg verða í A-riðli Meistaradeildar Evrópu. Ronny Hartmann/picture alliance via Getty Images Dregið var í riðla í Meistaradeild Evrópu í handbolta í morgun og framundar eru margar áhugaverðar viðureignir. Eins og áður er liðunum 16 skipt upp í tvo átta liða riðla þar sem tvö efstu liðin vinna sér inn sæti í átta liða úrslitum. Liðin sem enda í 3.-6. sæti fara í hálfgerð 16-liða úrslit þar sem barist er um seinustu fjögur sætin í átta liða úrslitum. Nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Magdeburg með þá Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs eru í A-riðli. Með þeim í riðli eru lið á borð við PSG og Telekom Veszprém, en Bjarki Már Elísson gengur til liðs við Veszprém á næsta tímabili. Búast má við því að þessi þrjú lið muni berjast um efstu tvö sæti riðilsins. Að öllum líkindum munu fleiri lið berjast um efstu tvö sæti B-riðils, en þar eru fjögur Íslendingalið. Viktor Gísli Hallgrímsson gengur til liðs við HBC Nantes sem leikur í B-riðli, Orri Freyr Þorkelsson er leikmaður Elverum, Aron Pálmarsson er leikmaður Álaborgar og Haukur Þrastarson er leikmaður Lomza Kielce. Búast má við því að Pick Szeged, Barcelona, Lomza Kielce, Kiel, Nantes og Álaborg muni raða sér í efstu sex sæti riðilsins, en þó gætu Elverum og Celje valdið usla. Riðlarnir
Eins og áður er liðunum 16 skipt upp í tvo átta liða riðla þar sem tvö efstu liðin vinna sér inn sæti í átta liða úrslitum. Liðin sem enda í 3.-6. sæti fara í hálfgerð 16-liða úrslit þar sem barist er um seinustu fjögur sætin í átta liða úrslitum. Nýkrýndir Þýskalandsmeistarar Magdeburg með þá Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs eru í A-riðli. Með þeim í riðli eru lið á borð við PSG og Telekom Veszprém, en Bjarki Már Elísson gengur til liðs við Veszprém á næsta tímabili. Búast má við því að þessi þrjú lið muni berjast um efstu tvö sæti riðilsins. Að öllum líkindum munu fleiri lið berjast um efstu tvö sæti B-riðils, en þar eru fjögur Íslendingalið. Viktor Gísli Hallgrímsson gengur til liðs við HBC Nantes sem leikur í B-riðli, Orri Freyr Þorkelsson er leikmaður Elverum, Aron Pálmarsson er leikmaður Álaborgar og Haukur Þrastarson er leikmaður Lomza Kielce. Búast má við því að Pick Szeged, Barcelona, Lomza Kielce, Kiel, Nantes og Álaborg muni raða sér í efstu sex sæti riðilsins, en þó gætu Elverum og Celje valdið usla. Riðlarnir A-riðill Paris Saint-Germain (Frakkland) Magdeburg (Þýskaland) GOG (Danmörk) Porto (Portúgal) Dinamo Bucuresti (Rúmenía) Telekom Veszprém (Ungverjaland) Wisla Plock (pólland) RK Zagreb (Króatía) B-riðill Pick Szeged (Ungverjaland) Barcelona (Spánn) Celje (Slóvenía) Lomza Kielce (Pólland) THW Kiel (Þýskaland) HBC Nantes (Frakkland) Elverum (Noregur) Álaborg (Danmörk)
A-riðill Paris Saint-Germain (Frakkland) Magdeburg (Þýskaland) GOG (Danmörk) Porto (Portúgal) Dinamo Bucuresti (Rúmenía) Telekom Veszprém (Ungverjaland) Wisla Plock (pólland) RK Zagreb (Króatía) B-riðill Pick Szeged (Ungverjaland) Barcelona (Spánn) Celje (Slóvenía) Lomza Kielce (Pólland) THW Kiel (Þýskaland) HBC Nantes (Frakkland) Elverum (Noregur) Álaborg (Danmörk)
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Gunnar Nelson með augun á bardaga í ár Sport „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fótbolti Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Körfubolti Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Handbolti Fleiri fréttir Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Uppgjör: Svartfjallaland - Ísland 33-24 | Hér varð hrun Viggó kom að tuttugu mörkum í fyrsta sigrinum á árinu 2026 Frábær Ómar Ingi með markahæsta leikinn sinn á árinu 2026 Donni sneri aftur eftir aðgerð KA upp um tvö sæti með algjörum risasigri Fastur í Ísrael og leitar skjóls í neðanjarðarbyrgjum Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Sjá meira