Niðurstaða fundarins var sú að einungis Guðjón Reynisson stjórnarformaður og Margrét Guðmundsdóttir héldu sætum sínum í stjórn Festar en Ástvaldur Jóhannsson, Sigrún Hjartardóttir og Þórey Guðmundsdóttir náðu ekki endurkjöri.
Þrír nýir stjórnarmenn Festar eru Magnús Júlíusson, aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigurlína Ingvarsdóttir, fjárfestir og fyrrverandi stjórnandi í tölvuleikjaframleiðslu hjá EA Sports, og Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður Sýnar.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var ákveðið að Guðjón yrði áfram stjórnarformaður félagsins en Sigurlín verður varaformaður.
Tilnefningarnefnd félagsins tilnefndi níu manns, þar af alla sitjandi stjórnarmenn. Þá voru fimm aðrir sem buðu sig fram til stjórnarsetu - einn frambjóðandi dró síðar framboð sitt til baka - en fáheyrt er að svo margir sækist eftir sæti í stjórn félags í kauphöllinni hér á landi.
Eins og fram kom í umfjöllun Innherja voru Lífeyrissjóðir starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn, og Lífeyrissjóður verslunarmanna, þriðji stærsti hluthafinn, á því að stokka þyrfti upp í stjórninni. Þannig hafði Lífeyrissjóður verslunarmanna hafði frumkvæði að því að óska eftir að Hjörleifur Pálsson myndi gefa kost á sér til að taka sæti í stjórninni og framboð Sigurlínu Ingvarsdóttur njóta stuðnings Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Á fundinum fyrr í dag setti LSR öll sín atkvæði á Sigurlínu í margfeldiskosningunni.