Lífið

Stjörnulífið: Sumarfríið, sólin, fjallgöngur og náttúrulaugar

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta af samfélagsmiðlum síðustu daga. Instagram

Veiðin, sundlaugarnar, sumarfríið og sælan. Stjörnurnar virðast vera að njóta lífsins þessa dagana ef marka má samfélagsmiðla, hvort sem er hérlendis í fjallgöngu eða erlendis á sólarströndum. 

Ástin, ýmiskonar tímamót og fögnuðir eiga yfirleitt sviðið á þessum tíma í júlí þegar flestir eru að njóta lífsinsins í faðmi vina og fjölskyldu. 


Það er augljóslega mikið að gera í fyrirsætustörfunum hjá fótboltamanninum og dansstjörnunni Rúrik Gíslasyni sem getur ekki beðið eftir því að fara í frí og njóta sumarsins. 

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra, virðist njóta lífsins í botn í ævintýraferð með fjölskyldunni á Englandi. Hann segir sumarfríið ekki verða mikið slakara en þetta. 

Athafnakonan Birgitta Líf skellti sér í göngu í fallega Reykjadalinn um helgina og baðaði sig að sjálfsögðu í náttúrulauginni á toppnum eins og alvöru gellum sæmir. 

Stjörnuþjálfarinn og gellan Gerða Jóns lét sig heldur ekki vanta í Reykjadalinn og náttúrulaugina vinsælu. 

Tónlistarmaðurinn Aron Can skálaði í kokteil með kærustunni sinni Ernu Maríu.

Sunnveva Einars kann svo sannarlega að njóta og spóka sig um í sólinni. 

Birgitta Haukdal dásamar landið sitt en hún labbaði Fimmvörðuhálsinn um helgina ásamt eiginmanni sínum, lögfræðingnum Benedikt Einarssyni. 

Mæðgur í stíl! - Fanney Ingvarsdóttir markaðsfulltrúi Bioeffect, birti skemmtilega mynd af sér og dóttur sinni þar sem þær eru alsælar og klæddar í stíl. 

Söng- og leikkonurnar Selma Björns og Hansa voru glæsilegar í veislustjóragír um helgina. Þær voru að sjálfsögðu í stíl og geisluðu eins og vanalega íklæddar rauðum pallíettum. 

Fegurðardrottning allra tíma, Linda Pé, hefur engu gleymt.

Leik- og söngkonan Þuríður Blær var með skvísulæti í Malaga. 

Gleðigjafinn Eva Ruza var stórglæsileg að vanda þegar hún henti sér í sjóinn í Slóveníu en þar nýtur hún nú lífsins í sumarfríi með fjölskyldunni. 

Leikkonan og nýbakaða móðirin Unnur Eggerts birti fallegar myndir frá heimsókn sinni til Íslands. 

Cross Fit drottningin Katrín Tanja og kærasti hennar Kyle Vandever virðast ástfangin upp fyrir haus samkvæmt fallegum myndum sem Katrín birti af þeim í vikunni. 

Herra Hnetusmjör og Birgir Hákon gáfu út lagið SJÁÐU MIG NÚ á miðnætti á föstudag. Hnetusmjör birti skemmtilega mynd af þeim félögum á Instagram síðu sinni, þar sem Birgir heldur um maga hans, með yfirskriftinni: Við Biggi eigum von á nýju lagi á miðnætti.

Bubbi kvartaði ekki yfir vondu veðri og undbjó sig fyrir stórlaxa á Húsavík. 

Manúela og Eiður voru glæsileg að vanda er þau voru stödd á keppninni Miss supranational í Póllandi sem fór fram um helgina. 

Sminkan og hlaupadrottningin Rakel María var ein af þeim sem hljóp Laugavegshlaupið um helgina en hún gerði sér lítið fyrir og kláraði 55 kílómetra á 6 klukkustundum og 44 mínútum. 

Hjónin Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn eru stödd í spænskri paradís þessa dagana sem fer þeim einstaklega vel. 

Sönkonan Bríet var ein þeirra sem kom fram á listahátíðinni Lunga um helgina og virtist fjörðurinn góði fara vel með okkar konu samkvæmt myndum hennar á Instagram. 

Söng- og fjölmiðlakonan Vala Eiríks skemmtir sér vel á ferðalagi um landið þessa dagana þar sem hún er hluti af Bylgjulestinni þetta árið. 

Guðlaugur Þór umhverfisráðherra birti mynd af sinni heittelskuðu, Ágústu Johnson, þar sem þau nutu ljúfa lífsins í Prag. 

Tobba Marínós felur sig á bak við gám í sumarfríinu sínu á Flateyri. 

Tónlistarkonunar Þórunn Antonía og Hildur kynda undir útgáfu nýs sumarsmells sem er nýtt samstarf þeirra en lagið er væntanlegt á næstu dögum. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála og vinnumarkaðsráðherra, fór í göngu á Dröngum á Ströndum sem var eitt þeirra svæða sem hann friðlýsti í starfi sínu sem umhverfisráðherra. 

Svanhildur Heiða sólar sig í tærum sjónum á Grikklandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.