Það merkilega við þetta er að svæðin eru mjög jöfn hvað veiði varðar en eftir að nýtt veiðifyrirkomulag var sett upp þá var gamla svæði III sett inn í svæði I-II. Svæði III var oft ansi rólegt og gaf litla veiði en í sumar er það engin eftirbátur hinna svæðanna. Svæði I-II-III eru núna veidd saman en svæði IV er ennþá selt sér. Mikið af vænum laxi hefur verið að veiðast og nú síðast veiddist 102 sm lax í Kálfhagahyl og aðrir svona drekar hafa verið að sýna sig víða um ánna.
Það verður spennandi að sjá hvað haustið ber með sér í Stóru en það er gjarnan sá tími sem stórar haustgöngur mæta í hana og þá er ekkert óalgengt að hollin séu að ná 100 löxum. Hollið sem er við veiðar núna á neðra svæðinu (svæði I-II-III) er komið yfir 30 laxa og heildartalan að nálgast 400 laxa.