Vítamark Jorginho dugði gegn lærisveinum Lampards 6. ágúst 2022 18:40 Jorginho skoraði örugglega úr vítinu. Joe Prior/Visionhaus via Getty Images Chelsea vann nauman 1-0 útisigur á Everton er liðin áttust við á Goodison Park í Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Alvarleg meiðsli Ben Godfrey, miðvarðar Everton, snemma leiks settu ákveðinn skugga á leikinn en hann tafðist um rúmar níu mínútur vegna þeirra og var Godfrey borinn af velli. Uppbótartíminn í fyrri hálfleik var því umtalsverður en í þeim uppbótartíma gerðist Abdoulaye Doucouré brotlegur á vinstri bakverðinum Ben Chilwell innan teigs Everton. Vítaspyrna var dæmd og úr henni skoraði Ítalinn Jorginho af öryggi. Fátt var um fína drætti í síðari hálfleiknum en aftur varð uppbótartíminn umtalsverður. Stöðva þurfti leikinn um tíma vegna þess að stuðningsmaður þurfti á læknishjálp að halda. Frekari fregnir af heilsufari stuðningsmannsins hafa ekki borist. Þrátt fyrir tíu mínútna uppbótartíma tókst Everton ekki að jafna leikinn og lauk honum því 1-0 fyrir Chelsea sem hefur mótið á sigri. Enski boltinn