Innlent

Leita að sjósunds­manni við Akra­nes

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá aðgerðum við Langasand fyrr í kvöld.
Frá aðgerðum við Langasand fyrr í kvöld. Sigurður Elvar Þórólfsson

Björgunarsveitir leita nú að sjósundsmanni úti fyrir Langasandi við Akranes. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á flugi á svæðinu og aðstoðar við leitina.

RÚV greinir frá þessu en þar kemur fram að útkall hafi komið vegna leitarinnar klukkan tuttugu mínútur í níu í kvöld.

Í samtali við fréttastofu staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, að leit standi yfir og að hún muni halda áfram í kvöld. Hann gat ekki gefið frekari upplýsingar og vísaði á lögregluna á Vesturlandi. 

Ekki hefur náðst samband við lögregluna sem fer með umsjón yfir leitinni.

Uppfært klukkan 00:10:  RÚV greinir frá því að þyrla Landhelgisgæslunnar sé ekki lengur hluti af leitinni. Leit stendur þó enn yfir. 

Uppfært klukkan 8:00: Lögreglan á Vesturlandi vill ekki veita upplýsingar um stöðu leitarinnar að svo stöddu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×