Landhelgisgæslan

Fréttamynd

Bráð veikindi á Fimm­vörðu­hálsi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi.

Innlent
Fréttamynd

Kominn á sjúkra­hús eftir krefjandi ferð

Veikur einstaklingur sem sóttur var af Landhelgisgæslunni um borð í skemmtiferðaskip sem var statt á milli Grænlands og Vestfjarða í kvöld er kominn á Landspítalann. Þyrla og flugvél gæslunnar lentu í Reykjavík um klukkan 22 og var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Land­helgis­gæslan til taks - í heila öld

Landhelgisgæsla Íslands fagnar í dag 100 ára afmæli. Í heila öld hefur hún staðið vörð um öryggi lands og þjóðar, verndað íslenska hagsmuni á hafi og komið fólki til bjargar við erfiðustu aðstæður.

Skoðun
Fréttamynd

Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna

Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna.

Innlent
Fréttamynd

Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey

Björgunarsveitin Skagafirðingasveit á Sauðárkróki var kölluð út vegna einstaklings sem hafði slasast á fæti í Drangey í Skagfirði. Viðkomandi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Innlent
Fréttamynd

„Allir eru reiðu­búnir að hætta á hand­töku“

Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar.

Innlent
Fréttamynd

„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Sér­sveitar­menn um borð í Þór

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki gefið Land­helgis­gæslunni upp stað­setningu Bandero

Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins.

Innlent
Fréttamynd

„Ofurnjósnaskip Pútíns“ í ís­lenskri lög­sögu

Rússneska njósnaskipið sem siglir nú í efnahagslögsögu Íslands hefur verið kallað „ofurnjósnaskip Pútíns“ en það er hluti af norðurflota rússneska sjóhersins. Íslensk varnarmálayfirvöld hafa engar sérstakar áhyggjur af skipinu enda stafar lítil sem engin hætta af sjálfu sjófarinu. Algengt er orðið að rússnesk sjó- og loftför sveimi um á norðurslóðum.

Innlent
Fréttamynd

Gæslan fylgist grannt með rúss­nesku skipi

Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er undir eftirliti Landhelgisgæslu Íslands en skipið er þessa stundina á siglingu vestur af landinu. Það sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun en er með takmarkaðan vopnabúnað. Engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu.

Innlent
Fréttamynd

Sóttu öku­mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Fluglistir sýndar yfir Reykja­víkur­flug­velli

Flugveislu er lofað á árlegri flugsýningu Flugmálafélags Íslands sem fram fer á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, laugardag. Fjölbreytt úrval loftfara af öllum stærðum og gerðum verður til sýnis, bæði á flugi og á jörðu niðri á sýningarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Vakta haf­svæðið með ESB-dróna frá Horna­firði

Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Snekkjueigandinn stefnir ís­lenska ríkinu

La Datcha Marine X Ltd., sem á snekkjuna La Datcha sem siglt var inn Eyjafjörðinn í mars, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni. Skipverjum var meinuð koma til landsins á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland.

Innlent
Fréttamynd

„Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“

Tíu ára sonur Elísu Óskar Ómasdóttur og átta ára frændi hans römbuðu á torkennilegan hlut í vikunni við Miklavatn hjá Gili í Skagafirði. Elísa vissi fyrst ekki hvað var um að ræða en eftir að hún leitaði á netinu brá henni heldur í brún þegar niðurstöðurnar gáfu til kynna að um pólska eða þýska sprengju væri að ræða. 

Innlent