Southampton snéri taflinu við gegn Chelsea Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. ágúst 2022 20:39 Adam Armstrong skoraði markið sem skildi liðin að í kvöld. Ryan Pierse/Getty Images Southampton vann óvæntan 2-1 sigur er liðið tók á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Það voru þó gestirnir í Chelsea sem tóku forystuna þegar Raheem Sterling kom boltanum í netið eftir vel útfærða skyndisókn á 23. mínútu, en aðeins fimm mínútum síðar jöfnuðu heimamenn metin með góðu marki frá Romeo Lavia. Það stefndi því allt í að staðan yrði jöfn þegar liðin myndu ganga til búningsherbergja, en Adam Armstrong sá til þess að það voru heimamenn sem fóru með 2-1 forystu inn í hálfleikshléið þegar hann kom liðinu yfir með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Gestirnir sköpuðu sér nokkur ágætis færi í síðari hálfleik til að jafna metin, en allt kom fyrir ekki og niðurstaðan því 2-1 sigur Southampton. Southampton situr nú í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki, jafn mörg og Chelsea sem situr sæti neðar. Fótbolti Enski boltinn